tækninámsdagur ha 2026!
Öll hjartanlega velkomin á TÆKNINÁMSDAG HA 2026!
Föstudaginn 15. maí frá klukkan 12 til 15 verður opið hús í Háskólanum á Akureyri þar sem stúdentar í tæknifræði og tölvunarfræði ásamt meistaranemum í stafrænni heilbrigðistækni í HA við HR munu kynna verkefni sem þeir eru að leggja lokahönd á. Stúdentarnir verða með bása og plaköt til sýnis tilbúin í spjall um verkefni sín og námið.
Starfsfólk verður einnig til tals þar sem áhugasöm geta kynnt sér áhugavert og gagnlegt nám í tæknifræði og tölvunarfræði sem er í boði sem staðnám við HA í samstarfi við HR.
Viðburðurinn fer fram í Miðborg háskólans sem staðsett er við aðalinngang.
Verkefnin eru afar fjölbreytt:
- Glatvarmi kyndir sundlaug
- Róbótar
- Vefsíðugerð
- Sólarorka á þaki HA
- Iðntölvur og sjálfvirkni
- Vélrænt gagnanám í heilbrigðisgeiranum
- Vefforritun - framendi og bakendi
- Starfsnám
- ...og margt fleira
Úr tölvunarfræði við HA í stofnun fyrirtækisins Maven
Boðið verður upp á opið erindi klukkan 12:30 í stofu M102
Öll velkomin - við hlökkum til að sjá ykkur!