Veltek stendur fyrir Velferðartæknimessu í Háskólanum á Akureyri fimmtudaginn 15. október.
Á messunni gefst gestum tækifæri til að kynnast fjölbreyttum lausnum á sviði velferðartækni, heyra reynslusögur og ræða beint við fyrirtæki og þjónustuaðila. Velferðartækni getur meðal annars stuðlað að auknu sjálfstæði, öryggi og lífsgæðum fólks og stutt við þróun heilbrigðis- og velferðarþjónustu.
Dagskrá
Dagskráin hefst kl. 10.00 í stofu M102 með örkynningum frá þjónustuaðilum ásamt reynslusögum.
Að kynningum loknum gefst gestum tækifæri til að hitta þjónustuaðilana, kynna sér lausnir þeirra nánar og fá frekari upplýsingar um vörur og þjónustu.
Á messunni verða:
- Memaxi
- Icepharma
- Hjúki
- Stoð
- Dala.Care
Öll áhugasöm velkomin
- Messan er opin öllum sem hafa áhuga á velferðartækni.
- Stúdentar HA eru sérstaklega hvattir til að nýta tækifærið og kynna sér lausnir og nýjungar á þessu ört vaxandi sviði.
- Öll áhugasöm á Akureyri og nágrenni eru jafnframt hjartanlega velkomin.
- Skráðu þátttöku þína hér
Messan er haldin af Veltek – heilbrigðis- og velferðartækniklasa Íslands, í samstarfi við Háskólann á Akureyri, Heilbrigðisstofnun Norðurlands eystra (HSN), Heilsuvernd, Sjúkrahúsið á Akureyri (SAk) og Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi eystra (SSNE).
Við hlökkum til að sjá þig!