14. febrúar 2026 kl. 14:00-15:30
Brautskráning febrúar kandídata og þeirra kandídata sem fengu brautskráningarskírteini sín í október 2025
Vetrarbrautskráning Háskólans á Akureyri fer fram í Hátíðarsal háskólans laugardaginn 14. febrúar 2026. Athöfnin er ætluð kandídötum sem fengu brautskráningarskírteini sín í október 2025 ásamt febrúar kandídötum 2026. Athöfnin fer fram með hefðbundnu sniði í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri og eftir athöfn er boðið til móttöku með kaffi og sætum bita.
Skráning
Mikilvægt er að kandídatar skrái þátttöku sína og gesta. Lokað hefur verið fyrir skráningu, ef þú gleymdir að skrá þig getur þú haft samband við Sólveigu Maríu viðburðastjóra hátíðarinnar í gegn um netfangið solveigmaria@unak.is
Dagskrá
- 14.00-15.00 Brautskráning kandídata 2026 og brautskráðra í október 2025
- 15.00-15.15 Hópmyndataka
- 15.00-15.30 Móttaka með kaffi og sætum bita
Gott að hafa í huga
- Ljósmyndari tekur stemmningsmyndir úr athöfninni og verða myndirnar aðgengilegar á Flickr-síðu HA kandídötum að kostnaðarlausu
- Streymt verður frá athöfninni á Facebook-síðu Háskólans á Akureyri og upptaka síðan aðgengileg á YouTube rás háskólans
- Ljósmyndakassi verður á svæðinu
- Það væri gaman að taka þátt í deginum með ykkur undir merkinu #háskólinnáakureyri og @haskolinnaakureyri
ÞAÐ ER KOMIÐ AÐ TÍMAMÓTUM, VIÐ HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ ÞIG!