Vinsamlegast skráið þátttöku hér. Athugið að vinnustofan fer fram á íslensku.
Markmið vinnustofunnar er að skapa opinn vettvang fyrir samtal um helstu áskoranir og rannsóknargetu hér á landi á þessu sviði, efla vísindasamstarf og styrkja sókn íslenskra aðila í erlenda samkeppnissjóði.
Háskóli Íslands, Háskólinn á Akureyri, Norðurslóðanet Íslands og Rannís standa að vinnustofunni sem er sú þriðja í röð fjögurra vinnustofa verkefnisins Sterkari staða norðurslóðarannsókna á Íslandi. Vinnustofuröðin miðar að því að efla samtal og samráð rannsóknarumhverfisins hérlendis um málefni norðurslóða og er verkefnið fjármagnað af samstarfssjóði háskóla á vegum Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins.
Sjá dagskrá vinnustofunnar í heild sinni hér að neðan og í viðhengi.
Ekki hika við að hafa samband ef einhverjar spurningar vakna.
Vonumst til að sjá þig þann 11. mars!