Öll velkomin á opið málþing!
Málþingið Vistfræðilega erfðamengjafræði (e. Ecological Genomics) fer fram á ensku í Hátíðarsal Háskólans á Akureyri föstudaginn 27. mars.
Málþingið er sprottið upp úr farsælu vísindasamstarfi milli Auðlindadeildar Háskólans á Akureyri og Vist- og erfðafræðideildar Uppsalaháskólans. Fremstu sérfræðingar í faginu, fulltrúar Háskólans á Akureyri, Háskóla Íslands og Uppsalaháskóla, flytja fyrirlestra um hvernig megi nota erfðafræði og lífupplýsingatækni til að lesa úr erfðamengjum til að skilja vistfræðilega aðlögun og þróun ýmissa tegunda lífvera. Þá er málþingið jafnframt samstarfsviðburður Miðstöðvar doktorsnáms HA í tilefni af doktorsvörn í auðlindavísindum sem fram fer fyrr um daginn.
Aðalfyrirlesari málþingsins er Scott V. Edwards en hann er Alexander Agassiz prófessor í dýrafræði og safnstjóri fuglafræði við Harvard University. Hann er meðal fremstu sérfræðinga heims í þróunarfræði fugla og nýtir erfðafræði, líffræðilega fjölbreytni og samanburð á erfðamengjum til að rannsaka uppruna og þróun eiginleika, svo sem fjaðra og flugleysis.
Dagskrá
Kynning á málþingi & aðalfyrirlestur
Opnun og kynning: Kristinn Pétur Magnússon, prófessor við Auðlindadeild Háskólans á Akureyri
Aðalfyrirlestur: Fjölbreytni panerfðamengja spörfugla
Scott V. Edwards (Harward University)
Fyrir kaffihlé
Changes in Rock Ptarmigan Population Dynamics in Northeast Iceland, 1981 to 2025
Ólafur Karl Nielsen, PhD (Natural Science Institute of Iceland)
Implications for a support-release program Eurppopean green toad
Jacob Höglund, Professor (Uppsala University)
From genes to species, through museums and cells: Integrating approaches to understand convergent seasonal adaptation
Mafalda S. Ferreira, Assistant Professor (Stockholm University, & SciLife Lab)
Genomic Erosion by Structural Variation Across a Pan-Holarctic Superspecies: from short-reads to comparative pangenomics
Gabriel David, PhD (Uppsala University)
Kaffihlé
Eftir kaffihlé
Prey selection in boreal Odonata revealed by DNA metabarcoding
Hana Merchant, PhD (Uppsala University)
Linkage and the effects of deleterious mutations on genomic variation in White tailed eagles
Snæbjörn Pálsson, Professor (University of Iceland)
Genomic consequences of admixture in a Swedish sand lizard population
Seraina Emilia Bracamonte, PhD (Uppsala University)
Mutational Biases and Selection in Mitochondrial Genomes: Insights from a Comparative Analysis of Natural and Laboratory Populations of Caenorhabditis elegans
Alexandre Schifano, Doctoral student (Uppsala University)
Genetics of sympatric and allopatric divergence in Arctic charr
Arnar Pálsson, Professor (University of Iceland)
Umræður
Aðalfyrirlesari

Scott V. Edwards er Alexander Agassiz prófessor í dýrafræði og safnstjóri fuglafræði við Harvard University. Hann er meðal fremstu sérfræðinga heims í þróunarfræði fugla og nýtir erfðafræði, líffræðilega fjölbreytni og samanburð á erfðamengjum til að rannsaka uppruna og þróun eiginleika, svo sem fjaðra og flugleysis.
Rannsóknir hans hafa haft veruleg áhrif á skilning á þróunarsögu fugla, sjúkdómafræði, stofnerfðafræði og byggingu fuglagenamengisins. Hann var meðal fyrstu vísindamanna til að beita DNA-raðgreiningum til að kortleggja þróun tegunda (phylogeography) og hefur lengi rannsakað ónæmisgen (MHC) fugla og tengsl þeirra við sýkla og atferli.
Edwards hefur gegnt fjölbreyttum leiðtogahlutverkum, meðal annars sem deildarstjóri hjá US National Science Foundation með ábyrgð á 120 milljóna dollara árlegu rannsóknarfjármagni. Hann hefur verið forseti þriggja stórra alþjóðlegra fræðafélaga og setið í fjölda ráðgefandi nefnda fyrir stofnanir á borð við National Geographic, Smithsonian og Cornell Lab of Ornithology.
Hann hefur einnig stýrt verkefnum sem miða að því að laða nemendur af ólíkum sviðum til að stunda þróunar- og líffræðirannsóknir. líffræðirannsóknum. Scott Edwards er félagi í American Academy of Arts og Sciences og National Academy of Sciences.
Öll velkomin!