30. nóvember 2026 kl. 14:00-15:00
Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbær
Bragi Guðmundsson, professor emeritus segir frá 1. des.
Hvaða þýðingu hefur fullveldisdagurinn í hugum Íslendinga og hvernig umgöngumst við hugtakið fullveldi?
Orðið fullveldi er margnotað í pólitískri umræðu samtímans. Hvernig var það sett fram í sambandslögunum 1918 og hvaða þýðingu hafði sá dagur í sjálfstæðisbaráttu Íslendinga? Skiljum við hugtakið nú á sama veg eða er mögulegt að túlkun þess sé mismunandi eftir því hver talar?
Smelltu hér til að taka þátt í streymi
Boðið verður upp á fleiri erindi á Haustmisseri á Opnu húsi:
- 14. des - Hvernig tala kerfin okkar saman? Kynning frá HSN og SAk
Opin hús eru alltaf á mánudögum klukkan 14:00 í stofu N102, Sólborg, Norðurslóð 2
Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbær. Verkefninu er ætlað að auka aðgengi að fræðslu og bjóða fólk velkomið í háskólann okkar allra!
Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir - Ókeypis aðgangur!