6.- 8. október 2026
Ráðstefnan FærÍska fer fram í Háskólanum á Akureyri dagana 6. til 8. október

ráðstefnan færíska fer fram dagana 6. til 8. október 2026!

Markmið ráðstefnunnar eru þríþætt:

  • Að skapa vettvang fyrir miðlun íslenskra og færeyskra rannsókna á sviði líffræði, líftækni, sjávarútvegsfræði og skyldra greina
  • Að efla samstarf Íslands og Færeyja á sviði menntunar, rannsókna og nýsköpunar
  • Að efla menningarleg og félagsleg tengsl milli Íslands og Færeyja og styrkja tengsl milli íslenskra og færeyskra stofnana og atvinnulífs

Ráðstefnan er hugsuð sem vettvangur fyrir fræðafólk, stúdenta og sérfræðinga úr atvinnulífinu til að miðla þekkingu, deila reynslu og byggja upp samstarfsnet milli landanna. Einnig að styðja við áframhaldandi rannsóknasamstarf, verkefnaþróun og stúdentaskipti.

Kall eftir ágripum

Opið er fyrir innsendingu ágripa til og með 1. ágúst 2026

Ágripin verða flokkuð í eftirfarandi málstofur:

  • Hringrásarhagkerfið: úrgangur, endurvinnsla og endurnýting
  • Heilbrigði á norðurhjara: heilbrigðislausnir og lyfjaþróun
  • Umhverfisbreytingar í norðri: landvernd, líffræðileg fjölbreytni og samspil manns og umhverfis
  • Matvælaframleiðsla á sjó og landi: starfshættir, nýsköpun og gæðaeftirlit
  • Menntun í smáum byggðarlögum: þekkingarsköpun, kennsluhættir og sérstaða

Smelltu hér til að senda inn ágrip

Skráning

  • Opnað verður fyrir skráningu á ráðstefnuna 1. ágúst
  • Þú getur skráð þig á póstlista hér til að fá nánari upplýsingar og áminningu þegar skráning opnar

Frekari upplýsingar

Taktu dagana frá, við hlökkum til að eiga fræðandi tíma saman!