19. júní 2026 kl. 17:00-19:00
Félögum Góðvina er boðið að koma saman, heimsækja háskólann og eiga góða stund saman.

Góðvinir hafa undanfarið ár hleypt af stokkunum ýmsum verkefnum og á Gleðistund verður tækifæri til að ræða þau og mögulega fleiri tækifæri samtakanna. 

Gleðistundin byrjar á að Sigrún Stefánsdóttir, formaður, segir frá starfsemi samtakanna og ræðir verkefnin framundan. 

Í kjölfarið stígur á stokk söngkonan Maja Eir og tekur nokkur lög við gítarundirleik.

Í boði verða léttar veitingar og samvera með góðu fólki. 

Öll geta gerst Góðvinir og hvetjum við öll til að taka þátt. Til að finna frekari upplýsingar um Góðvini og skráningu er hægt að smella hér.