24. september 2026 kl. 10:00-16:00
Vísindadagur SAk og Heilbrigðisvísindastofnunar HA og SAk (HHSA)

Vísindadagur Sjúkrahússins á Akureyri og Heilbrigðisvísindastofnunar HA & SAk verður haldinn fimmtudaginn 24. september í Kjarna, á 3. hæð Sjúkrahússins á Akureyri, og í streymi á Teams.

Á Vísindadeginum verður fjölbreytt dagskrá þar sem fjallað verður um rannsóknir, þróun og nýsköpun í heilbrigðisþjónustu. Meðal viðfangsefna eru svefnrannsóknir barna, stuðningur við ungmenni í kjölfar sjálfsvígs, stafræn heilbrigðisþjónusta, heilbrigðisþjónusta á Norðurslóðum, hermikennsla og líknarmeðferð.

Dagskráin hefst kl. 10:00 og kl. 14:00 verða afhentir styrkir og viðurkenningar. Að formlegri dagskrá lokinni, kl. 14:30–16:00, verður boðið upp á kaffi og tertur ásamt kynningum á meistaranámi, sérnámi og doktorsnámi.

Fundarstjóri: Hilda Jana Gísladóttir, samskiptastjóri SAk.