Verður deildarfor­seti Við­skipta­deildar HA

Dr. Sigurður Ragnarsson hefur verið kosinn sem forseti Viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri frá 1. júlí næstkomandi
Verður deildarfor­seti Við­skipta­deildar HA

Dr. Sigurður Ragnarsson hefur verið kosinn sem forseti Viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri frá 1. júlí næstkomandi til tveggja ára.

Sigurður hefur gegnt stöðu aðjúnkts og síðar lektors við Viðskiptadeild HA frá árinu 2021 þar sem hann hefur meðal annars kennt forystu, stjórnun, mannauðsfræði og samningatækni.

Samhliða störfum sínum hefur hann rekið fyrirtækið Forystu og samskipti, sem býður uppá stjórnenda- og forystuþjálfun, og hann heldur einnig úti hlaðvarpi undir sama nafni á hlaðvarpsrás skólans. Sigurður hefur einnig kennt við flesta háskóla hér á landi, þ.á.m. Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík. Þá var hann áður yfir Viðskiptadeild Háskólans á Bifröst sem og staðgengill rektors.

Sigurður hefur einnig starfað sem framkvæmdastjóri í nokkrum fyrirtækjum, þ.á.m. hjá vefmiðlinum Vísir.is. Hann byrjaði þó sinn feril í fjölmiðlum og þá sérstaklega útvarpi. Hann starfaði m.a. á Bylgjunni, Rás 2, FM957 og Stjörnunni sálugu.

Sigurður útskrifaðist með MBA gráðu með áherslu á stjórnun og markaðsfræði frá Golden Gate University í Bandaríkjunum. Hann lauk svo doktorsgráðu í viðskiptafræði við Háskóla Íslands þar sem hann rannsakaði iðkun þjónandi forystu í bandarískum fyrirtækjum.