Valmynd Leit

Náms- og starfsráđgjöf

Velkomin á vef náms- og starfsráðgjafar HA. Hlutverk ráðgjafarþjónustunnar er  fjölþætt og felst m.a. í því að veita nemendum háskólans margvíslega þjónustu,  stuðning og leiðbeiningar á meðan á námi stendur.  Auk þess leiðbeinir ráðgjafi  væntanlegum nemendum um val á námi og veitir ráðgjöf og upplýsingar um nám í HA og þjónustu innan háskólans sem nemendur og almenningur eiga kost á. Náms- og starfsráðgjafi hefur umsjón með málefnum fatlaðra nemenda og nemenda með sértæka námsörðugleika

Meðal þess sem hægt er að sækja til ráðgjafarþjónustu HA á meðan á námi stendur er:

  • Ráðgjöf, leiðsögn og kennsla um bætt vinnubrögð í námi
  • Persónuleg ráðgjöf varðandi námsframvindu einkalíf
  • Ráðgjöf leiðsögn og skráningar varðandi sérúrræði í námi
  • Námskeið í námstækni
  • Námskeið um kvíðastjórnun vegna prófkvíða
  • Starfsráðgjöf

Náms- og starfsrágjöf HA leggur áherslu á að veita þjónustu sem sniðin er að þörfum þeirra sem eftir henni leita hverju sinni. Skrifstofa náms- og starfsráðgjafa er staðsett í E-húsi, Sólborg.

Náms- og starfsráðgjafi HA er:

Solveig Hrafnsdóttir M.Sc.
Sími: 460 8034
Netfang: radgjof@unak.is

Sólveig Hrafnsdóttir
 

Opnir viðtalstímar eru alla virka daga frá 13:30-14:30. Ekki þarf að bóka í opna viðtalstíma.

Tímabókanir fara fram á netfanginu radgjof@unak.is

 

 

 

Námssviđ

Heilbrigðisvísindasvið

Viðskipta- og Raunvísindasvið

Fjarnám

Framhaldsnám

Hug- og félagsvísindasvið

Rannsóknastofnanir

Háskólinn á akureyri

Sólborg v/norđurslóđ         600 Akureyri, Iceland         unak@unak.is         S. 460 8000 / f: 460 8999

Skráđu ţig á póstlista HA

Fylgdu okkur eđa deildu