19.-20. May
REGISTER NOW – WE LOOK FORWARD TO AN INSPIRING TIME TOGETHER!
Sjónaukinn, the annual conference of the School of Health, Business and Natural Sciences at the University of Akureyri, will be held at the University of Akureyri on May 19th – 20th 2026.
The theme of this year’s conference is Lessons learned, Solutions and the Way Forward.
The aims of the conference is to:
- Shed light on the changes and progress that have taken place in recent decades in knowledge, teaching, and solutions within the health sciences and work in the healthcare sector.
- Create a platform for discussion and encourage further development and innovation within the health sciences.
Keynote Speakers
Keynote speakers at Sjónaukinn reflect this year’s conference theme: Lessons learned, Solutions and the Way Forward.
Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir
Yfirlæknir efnaskipta og offitusviðs Reykjalundar

Guðrún Þuríður er yfirlæknir efnaskipta og offitusviðs Reykjalundar. Guðrún lauk sérnámi í lyflækningum og svo innkirtlalækningum frá Sahlgrenska sjúkrahúsinu í Gautaborg og doktorsprófi frá háskólanum í Gautaborg. Guðrún hefur tekið þátt í kennslu nema í læknisfræði, hjúkrunarfræði og lyfjafræði við Gautaborgarháskóla, Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri. Aðal áherslur í rannsóknum hafa verið meðferð við offitu og sykursýki, bæði á Íslandi og í Svíþjóð. Guðrún situr í stjórn Félags fagfólks um offitu, stjórn Hjartaverndar og stjórn Northern European Obesity Network.
Erindi á Sjónaukanum
Offita er langvinnur sjúkdómur en þekking á orsökum og afleiðingum offitu hefur aukist mikið á síðastliðnum árum. Samhliða þessu hafa meðferðaráherslur breyst talsvert. Í erindinu verður farið yfir meðferðarúrræði við offitu á Íslandi og hvernig þau hafa breyst og þróast í gegnum árin.
Sigurborg Bjarnadóttir
Starfsmaður Þulu - Norrænt hugvit á Akureyri

Sigurborg Bjarnadóttir starfar hjá hugbúnaðarfyrirtækinu Þulu – Norrænt hugvit á Akureyri. Þula þróar hugbúnaðarlausnir fyrir heilbrigðisstofnanir sem notaðar eru við lyfjameðferð og lyfjaumsýslu.
Sigurborg er hjúkrunarfræðingur að mennt og lauk BSc-gráðu í hjúkrunarfræði frá Háskólanum á Akureyri árið 2005. Eftir útskrift starfaði hún á skurðlækningadeild Sjúkrahússins á Akureyri og síðar í sex ár á bæklunardeild Kristiansund sykehus í Noregi. Hún hefur einnig starfað á öldrunarheimilinu Lögmannshlíð.
Síðastliðin níu ár hefur Sigurborg starfað hjá Þulu þar sem hún sinnir gæðaeftirliti og prófunum á hugbúnaðarkerfum sem notuð eru við lyfjaumsýslu á heilbrigðisstofnunum, meðal annars á sjúkrahúsum, öldrunarheimilum og í apótekum. Undanfarin ár hefur hún einkum unnið við gæðaeftirlit og prófanir á rafræna lyfjafyrirmælakerfinu eMed, sem styður heilbrigðisstarfsfólk við gerð og viðhald lyfjakorta á öldrunarheimilum.
Sigurborg hefur nýlokið meistaranámi í stafrænni heilbrigðistækni (Digital Health) við Háskólann í Reykjavík.
Erindi á sjónaukanum
Rafræn kerfi gegna sífellt stærra hlutverki í lyfjaumsýslu á heilbrigðisstofnunum. Slík kerfi geta stuðlað að auknu öryggi og betri yfirsýn yfir lyfjameðferð einstaklinga, en hafa jafnframt áhrif á daglega verkferla heilbrigðisstarfsfólks.
Í erindinu verður fjallað um rafræna lyfjaumsýslu og sérstaklega rafrænt lyfjafyrirmælakerfi, eMed, sem styður við gerð og viðhald rafrænna lyfjakorta á öldrunarheimilum. Fjallað verður um stafrænt flæði lyfjaupplýsinga milli heilbrigðisstarfsfólks, þar á meðal gerð lyfjafyrirmæla, viðhald lyfjakorta og rafræn samskipti við apótek. Erindið byggir meðal annars á niðurstöðum úr meistaraverkefni í stafrænni heilbrigðistækni þar sem tekin voru viðtöl við heilbrigðisstarfsfólk til að kanna upplifun þeirra af notkun slíkra kerfa í daglegu starfi.
Niðurstöðurnar varpa ljósi á bæði tækifæri og áskoranir sem fylgja innleiðingu rafrænna lausna í lyfjaumsýslu og draga fram mikilvægi þess að stafrænar lausnir styðji við örugga lyfjameðferð og taki mið af þörfum notenda.
Þórdís Rósa Sigurðardóttir
Hjúkrunarfræðingur, deildarstjóri á Göngudeild lyflækninga

Þórdís Rósa Sigurðardóttir útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskólanum á Akureyri árið 2003, hún er með framhaldsmenntum í lýðheilsuvísindum frá Háskóla Íslands frá árinu 2011 og lauk einkaþjálfaranámi frá ÍAK árið 2012.
Þórdís hóf starfsferilinn á Hlíð þar sem hún starfaði í 4 ár, meðfram hjúkruninni var hún einnig fræðslustjóri árin 2004-2005. Síðan starfaði hún á Heilsugæslustöðinni á Akureyri, fyrst sem teymisstjóri í heimahjúkrun og síðar deildarstjóri heimahjúkrunar árin 2005-2010. Eftir útskrift úr lýðheilsunámi þá starfaði hún við heilsuvernd barna í grunnskólum í fjögur ár. Var síðan settur hjúkrunarforstjóri heilsugæslunnar á Akureyri árið 2014 þar til að Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) var stofnuð í október 2014.
Við stofnun Heilbrigðisstofnunar Norðurlands í október 2014 var hún ráðin í starf yfirhjúkrunarfræðings svæðis á Akureyri og tók þátt í góðri og skemmtilegri uppbyggingu stofnunarinnar Frá árinu 2020 hefur Þórdís starfað á SAk fyrst sem verkefnastjóri heimahlynningar þar sem stór hluti af starfinu var að festa starfsemi heimahlynningar í sessi innan SAk. Einnig að skilgreina hlutverk SAk á sviði líknarþjónustu út frá aðgerðaráætlun stjórnavalda og hluti af því var að setja á fót Líknarmiðstöð SAk sem var stofnuð í apríl 2023. Árið 2022 var hún ráðin aðstoðardeildarstjóri á almenni göngudeild SAk ásamt því að vera verkefnastjóri heimahlynningar. Þar tók hún þátt í þeim breytingum sem SAk fór í sem var að skipta Almennu göngudeildinni upp í þrjár deildar
Í dag er hún deildarstjóri á Göngudeild lyflækninga.
Erindi á sjónaukanum
Í erindinu verður fjallað um innleiðingu tilraunaverkefnis með fjarheilbrigðislausn þar sem einstaklingar með langvinna lungnasjúkdóma eru fjarvaktaðir í daglegu lífi. Lausnin fól í sér reglubundna skráningu einkenna og lífsmarkamælinga, ásamt rafrænni samskiptaleið við heilbrigðisstarfsfólk göngudeildarinnar.
Innleiðing tilraunaverkefnisins hófst haustið 2025. Tilgangur verkefnisins er að auka öryggi og bæta aðgengi að heilbrigðisþjónustu fyrir þennan hóp, auka skilvirkni í þjónustu með markvissari forgangsröðun og betri nýtingu á tíma heilbrigðisstarfsfólks. Einnig var lögð áhersla á að tryggja meiri samfellu í meðferð til að bregðast fyrr við versnun einkenna og þar með draga úr nauðsyn heimsókna á bráðamóttöku.
Niðurstöður fyrstu 12 vikna verkefnisins sýna að með fjarvöktun er unnt að greina versnun fyrr en áður og grípa tímanlega inn í með viðeigandi meðferð eða ráðleggingum. Þátttakendur upplifðu aukið öryggi og betri þjónustu, auk þess sem samskipti við heilbrigðisþjónustuna urðu markvissari.
Programme
Sjónaukinn takes place on Tuesday and Wednesday, May 19-20. Click on the dates below to view the detailed programme, or download the programme as a PDF document [coming soon]
ÞRIÐJUDAGUR 19. MAÍ
Upphafsfundur & AÐALFYRIRLESARAR | M101 & rafrænt
SETNING, AÐALFYRIRLESARAR OG PALLBORÐSUMRÆÐUR
09:00-09:20 | Velkomin á Sjónaukann 2026: Lærdómur, lausnir og leiðin áfram
Jette Mebrouk, formaður Sjónaukanefndar 2026
Sólrún Óladóttir, deildarforseti, Iðjuþjálfunarfræðideild
AÐALFYRIRLESARAR
09:20-09:50 | Þróun meðferðar við offitu: frá fortíð til framtíðar
Guðrún Þuríður Höskuldsdóttir
09:50-10:20 | Frá handskrifuðum lyfjakortum til stafrænnar yfirsýnar: áhrif eMed á öryggi og skilvirkni í lyfjaumsýslu á öldrunarheimilum
Sigurborg Bjarnadóttir
10:20-10:50 | Frá hefðbundnu eftirliti til fjarvöktunar: lærdómar, lausnir og leiðin áfram í þjónustu við fólk með langvinna lungnasjúkdóma
Þórdís Rósa Sigurðardóttir
10:50-11:10 | HLÉ
SJÓNAUKINN A - M101 & RAFRÆNT
ENDURHÆFING Í NÝJU LJÓSI
11:10 | Vaninn skapar velsæld. Reynsla Ljóssins af líkamlegri endurhæfingu krabbameinsgreindra
Áslaug Helga Aðalsteinsdóttir
11:30 | Geitur sem hluti af heilbrigðis- og velferðarþjónustu framtíðarinnar?
Sonja Stelly Gústafsdóttir
11:50 | Reynsla kvenna með geðrænar áskoranir af endurhæfingu - félagslegt sjónarhorn
Sólrún Óladóttir
12:10 | Endurhæfing á tímum gervigreindar: Tækifæri, takmarkanir og fagleg ábyrgð
Hrefna Óskarsdóttir
12:30-12:50 | PALLBORÐSUMRÆÐA
Lærdómur, lausnir og leiðin áfram
12:50-13:30 | HÁDEGISHLÉ
13:30-13:45 | Myndataka
VIRK ÞÁTTTAKA, HÆFNI OG NÝ HUGSUN
13:50 | Samskipti: Mikilvægi þjálfunar í samskiptatækni í kennslu og starfi
Pála Sigríður Tryggvadóttir
14:10 | Students as Co-creators in Learning and Teaching: A Way Forward
Jette Mebrouk
14:30 | Hermikennsla í sjálfsvígsmatsfærni í grunnnámi í hjúkrunarfræði
Gísli Kort Kristófersson & Kristín Linda Hjartardóttir
14:50 | Geðþjónusta Sjúkrahússins á Akureyri
Valborg Lúðvíksdóttir, Ragnheiður R. Magnúsdóttir & Snæbjörn Ómar Guðjónsson
15:10-15:30 | PALLBORÐSUMRÆÐA
Lærdómur, lausnir og leiðin áfram
15:30 | HLÉ
15:45-16:00 | Samantekt
Sjónaukanefndin
16:00 | DAGSKRÁRLOK FYRRI DAGS
SJÓNAUKINN B - M102 & RAFRÆNT
VELFERÐ Á EFRI ÁRUM: LÆRDÓMUR OG LAUSNIR
11:10 | „Þurfum við ekki öll mæður okkar á einn eða annan hátt?“ Reynsla sona af sambandi sínu við mæður sínar á hjúkrunarheimilum
Maria Finster Úlfarsson
11:30 | Gerum það vel, gerum það rétt og gerum það saman!
Anna Margrét Magnúsdóttir & Margrét Björk Ólafsdóttir
11:50 | Að taka þátt í að skrá eigin sjúkraskrá. Innleiðing persónumiðaða matsins, Hermes, í Heilsuveru og Sögu á endurhæfingardeildinni á SAk
Kristín Þórarinsdóttir
12:10 | Meira en félagsleg samskipti: Einmanaleiki og félagsleg einangrun eldra fólks
Halldór S. Guðmundsson
12:30-12:50 PALLBORÐSUMRÆÐA
Lærdómur, lausnir og leiðin áfram
12:50-13:30 | HÁDEGISHLÉ
13:30-13:45 | Myndataka
HEILSA OG KENNSLA Í VÍÐARA SAMHENGI
13:50 | Námskeið í notkun sýndarveruleika í hermikennslu og við heilsufarsmat
Þórhalla Sigurðardóttir
14:10 | Að tilheyra og vinna saman: Lærdómur og lausnir í námssamfélaginu
Sonja Stelly Gústafsdóttir & Silja Rún Friðriksdóttir
14:30 | Dust and Fjord Water Sampling in Akureyri: Results from International Study and the way forward
Audrey Louise Matthews
14:50 | Health Journey Study: Accelerometer-Measured Sleep, Physical Activity, and Sedentary Behavior Patterns in 36-year-old Icelanders – A Cross-Sectional Study
Kristrún María Björnsdóttir
15:10-15:30 | PALLBORÐSUMRÆÐA
Lærdómur, lausnir og leiðin áfram
15:30 | HLÉ
15:45-16:00 | Samantekt í stofu M101
Sjónaukanefndin
16:00 | DAGSKRÁRLOK FYRRI DAGS
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ
Upphafsfundur & AÐALFYRIRLESARAR | M101 & rafrænt
SETNING, ÁVARP RÁÐHERRA OG AÐALFYRIRLESARAR
08:45-09:00 | Velkomin á Sjónaukann 2026: Lærdómur, lausnir og leiðin áfram
Jette Mebrouk og Hrefna Óskarsdóttir, Sjónaukanefndin 2026
09:00-09:15 | Ávarp heiðursgests
Logi Einarsson, menningar- nýsköpunar- og háskólaráðherra, samstarfsráðherra Norðurlanda
AÐALFYRIRLESARAR
09:15-09:30 | Hjúkrunarfræðingur í 40 ár: þróun frá fortíð til nútíðar
Hafdís Skúladóttir dósent og deildarforseti Hjúkrunarfræðideildar
09:30-09:45 | Hæfniviðmið fyrir sérfræðinga í hjúkrun. Af hverju og hvernig?
Gísli Kort Kristófersson prófessor við Hjúkrunarfræðideild
09:45-10:00 | Menntun í nútíma velferðarþjónustu
Nanna Ýr Arnardóttir lektor við Hjúkrunarfræðideild og brautarstjóri framhaldsnáms
10:00-10:15 | PALLBORÐSUMRÆÐUR
Lærdómur, lausnir og leiðin áfram
10:15-10:30 | HLÉ
SJÓNAUKINN A | M101 & rafrænt
KYNNINGAR MEISTARANEMA
10:30-10:50 | „Vertu ekki að þessu væli strákur… harkaðu þetta af þér“ – Reynsla íslenskra karla af því að vera með vefjagigt.
Díana Ósk Halldórsdóttir
Leiðbeinandi: Þorbjörg Jónsdóttir / Meðleiðbeinandi: Hafdís Skúladóttir
10:50-11:10 | The assocciation between prescribed opioids and suicidal behavior among people with chronic pain: A Scoping review
Liljana Milenkoska
Leiðbeinandi: Þorbjörg Jónsdóttir / Meðleiðbeinandi: Deniz Harputlu
11:10-11:30 | ,,Þú ýtir ekki á takka og bíður eftir teyminu, þú ert teymið”: Reynsla háskólamenntaðs heilbrigðisstarfsfólks af störfum þeirra á landsbyggðinni.
Björg Eyþórsdóttir
Leiðbeinandi: Árún Kristín Sigurðardóttir
11:30-11:45 | PALLBORÐSUMRÆÐA
Lærdómur, lausnir og leiðin áfram
11:45-12:15 HÁDEGISHLÉ
12:15-12:30 | MYNDATAKA
12:30-12:50 | ,,Vera með puttan á púlsinum“ í krefjandi starfsumhverfi með takmörkuð úrræði: Upplifun hjúkrunarfræðinga sem vaktstjórar á landsbyggðasjúkrahúsum
Katrín Eva Reykjalín Guðmundsdóttir
Leiðbeinandi: Steinunn Jónatansdóttir
12:50-13:10 | „Ég var bara svona skugginn af sjálfri mér“. Einelti á vinnustað þar sem konur eru gerendur.
Kristín Helga Magnúsdóttir
Leiðbeinandi: Hjördís Sigursteinsdóttir / Meðleiðbeinandi: Kristín Linda H. Hjartardóttir
13:10-13:30 | Tíðni kulnunareinkenna meðal starfsfólks í heilbrigðis- og félagsþjónustu innan heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins
Berglind Gunnarsdóttir
Leiðbeinandi: Hjördís Sigursteinsdóttir / Meðleiðbeinandi: Kristín Linda H. Hjartardóttir
13:30-13:45 | PALLBORÐSUMRÆÐUR
Lærdómur, lausnir og leiðin áfram
13:45-14:00 HLÉ
14:00-14:20 | Líðan iðjuþjálfa í starfi: Áhrif starfsumhverfis og stjórnunar.
Guðríður Erna Guðmundsdóttir
Leiðbeinandi: Olga Ásrún Stefánsdóttir / Meðleiðbeinandi: Hjördís Sigursteinsdóttir
14:20-14:40 | „Finnst eins og lífið sé að fara frá mér ef ég fæ ekki meðbyr þegar ég kem út“. Reynsla fanga við lok afplánunar af því að vera á leið út í samfélagið
Anna Þóra Arnfjörð
Leiðbeinandi: Sigrún Sigurðardóttir / Meðleiðbeinandi: Karen Birna Þorvaldsdóttir
15:40-15:00 | Kraftmiklir krakkar. Lífstílsmeðferð fyrir börn með offitu og foreldra þeirra innan heilsugæslu hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands: Árangur og áhrif á lífstílsþætti
Þorbjörg Anna Steinarsdóttir
Leiðbeinandi: Árún Kristín Sigurðardóttir / Meðleiðbeinandi: Guðmundur Vignir Sigurðsson
15:00-15:15 | PALLBORÐSUMRÆÐUR
Lærdómur, lausnir og leiðin áfram
15:15-15:25 | HLÉ
15:25-15:45 | Áhættuþættir naloxone notkunar hjá inniliggjandi sjúklingum á Landspítala
Svava Ósk Thorsteinsson
Leiðbeinandi: Þorbjörg Jónsdóttir / Meðleiðbeinandi: Sigríður Zoëga
15:45-16:00 | Samantekt
16:00 | MÓTTAKA, BOÐIÐ VERÐUR UPP Á LÉTTAR VEITINGAR
SJÓNAUKINN B | M102 & RAFRÆNT
KYNNINGAR MEISTARANEMA
10:30-10:50 | Algengi langvarandi verkja og áhrif þeirra á lífsgæði meðal kvenna á barneignaraldri: Hvert leita konur og hver er árangur verkjameðferðar.
Kristín Júlía Hannesdóttir
Leiðbeinandi: Sigfríður Inga Karlsdóttir
10:50-11:10 | Verkir og heilsutengd lífsgæði kvenna á breytingarskeiðsaldri
Kristín Edda Búadóttir
Leiðbeinandi: Sigfríður Inga Karlsdóttir
11:10-11:30 | Fann fyrir öryggi í óöruggum aðstæðum: Reynsla kvenna af áhættumeðgönguvernd á Landspítala á meðgöngu eftir andvana fæðingu.
Stefanía Guðmundsdóttir
Leiðbeinandi: Sigfríður Inga Karlsdóttir
11:30-11:45 | PALLBORÐSUMRÆÐA
Lærdómur, lausnir og leiðin áfram
11:45-12:15 HÁDEGISHLÉ
12:15-12:30 | MYNDATAKA
12:30-12:50 | „Hún gaf mér verkfæri svo ég gæti flogið“: Reynsla mæðra af þjónustu brjóstagjafaráðgjafa.
Hildur Ármannsdóttir
Leiðbeinandi: Sigfríður Inga Karlsdóttir
12:50-13:10 | Vegurinn að heiman er vegurinn heim. Ávinningur heilabilunarvænna búsetuúrræða: yfirlitssamantekt.
Ester Jóhannsdóttir
Leiðbeinandi: Kristín Þórarinsdóttir / Meðleiðbeinandi: Jette Jörgensen Mebrouk
13:10-13:30 | Samveran og velferð makans verður miðpunktur tilverunnar
Rósa Jóhannesdóttir
Leiðbeinandi: Kristín Þórarinsdóttir / Meðleiðbeinandi: Margrét Hrönn Svavarsdóttir
13:30-13:45 | PALLBORÐSUMRÆÐUR
Lærdómur, lausnir og leiðin áfram
14:00-14:20 | Á fyrstu mínútunum: Þjálfun og viðhorf starfsfólks heilbrigðisstofnunar Vesturlands í bráðatilfellum
Kristín Norðkvist Ragnarsdóttir
Leiðbeinandi: Nanna Ýr Arnardóttir / Meðleiðbeinandi: Hrafnhildur Lilja Jónsdóttir
14:20-14:40 | Þroskatengd áföll, ofbeldi í nánum samböndum og aukinn þroski: Kenningarsamþætting
Margrét Lena Kjartansdóttir
Leiðbeinandi: Sigríður Halldórsdóttir
14:40-15:10 | „Þá er ég kannski bara hættur við að hætta“. Reynsla einstaklinga á landsbyggðinni af þjónustu og stuðningi í bataferli vegna áfengis- og/eða vímuefnavanda.
Erla Lind Friðriksdóttir
Leiðbeinandi: Helga Sif Friðjónsdóttir / Meðleiðbeinandi: Sigrún Sigurðardóttir
15:10-15:15 | PALLBORÐSUMRÆÐA
Lærdómur, lausnir og leiðin áfram
15:15-15:25 | HLÉ -> Þátttakendur færa sig í stofu M101
15:25-15:45 | Áhættuþættir naloxone notkunar hjá inniliggjandi sjúklingum á Landspítala
Svava Ósk Thorsteinsson
Leiðbeinandi: Þorbjörg Jónsdóttir / Meðleiðbeinandi: Sigríður Zoëga
15:45-16:00 | Samantekt
16:00 | MÓTTAKA, BOÐIÐ VERÐUR UPP Á LÉTTAR VEITINGAR
Abstracts
Registration
- There is no conference fee, and all are welcome.
- Participants cover their own travel, accommodation, and meals.
- It is important that participants register for the conference.
Click here to register
Further Information
Please contact Jette Jörgensen Mebrouk, Lecturer in the Faculty of Nursing and Chair of Sjónaukinn this year, at jette@unak.is, or Áslaug Lind Guðmundsdóttir, Project Manager at aslaug@unak.is for further information.