17. mars 2023 kl. 12:00-13:00
Hug- og félagsvísindatorg
Flestir líta jákvæðum augum á húmor. Hann er eftirsóknaverður hluti af persónuleika fólks, enda léttir hann því lífið og gerir samskipti skemmtilegri. Það er hins vegar ekki einfalt að útskýra í hverju húmor felst og þegar hann er skoðaður nánar kemur í ljós að hann er alls ekki alltaf jákvæður heldur oft svartur, meiðandi og grimmur.
Prófessorarnir Giorgio Baruchello við Háskólann á Akureyri og Ársæll Arnarsson við Háskóla Íslands hafa nýverið skrifað þriggja binda ritröð um tengsl húmor og grimmdar. Í fyrsta bindinu, sem nefnist Humour and Cruelty. Volume 1: A philosophical exploration of the humanities and social sciences og kom nýverið út hjá hinu fornfræga De Gruyter útgáfufyrirtæki, er einmitt leitast við að varpa ljósi á tengsl þessara tveggja hugtaka. Bókin er afar viðamikil og tekur til rannsókna í hugvísindum, félagsvísindum og heilbrigðisvísindum, allt frá forngrikkjum til vorra daga. Ekki þarf að fjölyrða um að efni bókarinnar á ríkt erindi við samtímann.
Útgáfudagurinn var 7.11.2022 og bókin er fáanleg í Bóksölu Stúdenta, á vef De Gruyter og einnig á Amazon.
Zoom hlekkur