Símenntun Háskólans á Akureyri brúar bilið á milli hefðbundinnar háskólamenntunar og símenntunar. Í boði eru einstök námskeið og lengri námsleiðir.
Símenntun er fyrir:
- Alla sem vilja auka þekkingu sína og færni óháð fyrri menntun
- Fagaðila sem vilja viðhalda þekkingu sinni í greininni
- Háskólakennara og starfsfólk háskólans
- Alla sem vilja sveigjanlegt námsfyrirkomulag
Kynntu þér hvað Símenntun hefur uppá að bjóða.
Stjórnendanám
Stjórnendanámið er á vegum Starfsmenntasjóðs Samtaka Atvinnulífsins (SA) og Sambands stjórnendafélaga (STF) í samstarfi við Símenntun Háskólans á Akureyri.
Námið er fyrir alla stjórnendur og millistjórnendur sem vilja:
- Auka þekkingu og færni í stjórnun
- Auka framleiðni fyrirtækisins
- Bæta starfsumhverfið og auka starfsánægju starfsmanna
- Gera boðleiðir og ábyrgð innan fyrirtækinsins skilmerkilegar