Rannsóknir

Hér má finna lykiltölur um rannsóknastarf háskólans árið 2025 sem varpa ljósi á umfang og árangur rannsókna.

Uppfært: Janúar 2026

203
Birtingar

196
Birtingar með aflstigum

123
Birtingar í ISL tímaritum

73
Starfsfólk með birtingar í ISL

3203
Rannsóknarstig

113
Rannsóknastig á stöðugildi

2127
Aflstig

>42
Styrkjaumsóknir

>17
Virk alþjóðleg rannsóknarverkefni

>15
Umsóknir í styrkjasjóði

 

Á síðastliðnum 7 árum hefur:

  • Birtingum fjölgað um 51%
  • Rannsóknastigum fjölgað um 54%
  • Aflstigum fjölgað um 50%

 

Skilgreiningar

 

Aflstig: Sá hluti rannsóknastiga sem fæst fyrir ritrýndar fræðilegar birtingar sem uppfylla strangar gæðakröfur ritrýnda vísindarita.

Ársverk: Mælikvarði á vinnumagn sem samsvarar einu fullu starfi í eitt ár.

Birtingar: Bækur, bókakaflar og greinar í innlendum og alþjóðlegum tímaritum eftir akademískt starfsfólk HA. Birtingar eru taldar eftir höfundaraðild starfsfólks HA. Ef tveir starfsmenn HA eru höfundar sömu greinar telst hún því sem tvær birtingar í þessum tölum.

Rannsóknastig: Stig sem akademískt starfsfólk fær fyrir rannsóknavirkni samkvæmt matskerfi opinberra háskóla. Fræðilegt efni starfsfólks er talið fram árlega og metið samkvæmt kerfinu og samanlögð stig mynda rannsóknastig HA.

Rannsóknir: Akademískt starfsfólk Háskólans á Akureyri stundar rannsóknir og miðlar niðurstöðum þeirra meðal annars með útgáfu fræðilegs efnis og erindum á ráðstefnum.