Nýnemi 101

Nýnemadagar 2017

Í ágúst er öllum nýnemum Háskólans á Akureyri boðið á Nýnemadaga við upphaf skólastarfs. Þar er komið á framfæri öllum helstu upplýsingum sem nýneminn þarf á að halda til þess að hefja farsælt nám. Skólastarfið er kynnt á hefðbundnum kennslutíma og nánari tímasetningu má finna í viðburðadagatali HA.

Stúdentafélag við Háskólann á Akureyri (SHA) sér um kvölddagskrá og kynnir félagslífið í skólanum.

Facebook, Instagram, Twitter, Linkedin

Umsókn lokið, hvað svo?

Hér getur þú fundið svör við helstu spurningum sem vakna við umsóknarferlið.

Þú fylgist með stöðu umsóknar þinnar á samskiptagátt HA

Nýnemadagar og stundaskrá

Á Nýnemadögum fer fram fræðsla um ýmislegt sem er til grundvallar háskólanámi og enginn nýnemi ætti að láta fram hjá sér fara. 

Í viðburðadagatali HA sérð þú hvenær í ágúst Nýnemadagar eru og stundaskrá fyrir fyrstu dagana þína í HA. Þú getur skoðað alla stundatöfluna þína í Uglu með því að smella á Uglan mín -> Stundataflan mín.

Aðgangur að Uglu (innrivefur), tölvupósti og Canvas

Uglan er þitt heimasvæði á innrivefnum. Þar finnur þú ýmsar upplýsingar svo sem stundatöflu, tilkynningar, matseðil og námskeið.

Sækja um aðgang

Þú sækir um notendanafn og lykilorð í samskiptagátt Uglu þegar þú hefur greitt skráningargjöldin. 

  1. Þú skráir þig inn með því netfangi og lykilorði sem þú notaðir þegar þú sóttir um skólavist
  2. Undir Yfirlit umsókna smellir þú á græna hnappinn Sækja notendanafn fyrir Uglu
  3. Þá kemur upp gluggi með notendanafni og lykilorði. Mundu að skrá notendanafnið niður, því þessi gluggi hverfur!
  4. Nú getur þú skráð þig inn á Uglu með notendanafn@unak.is og lykilorðinu. Þú breytir svo lykilorðinu í Uglu.
  5. Með aðgangi að Uglu færð þú einnig netfang hjá háskólanum (notendanafn@unak.is) og aðgang að Canvas. Háskólatölvupóstinn finnur þú í gegnum Uglu eða á office.unak.is.
  6. Til þess að þú getir skráð þig inn þarftu að setja upp tveggja þátta auðkenningu 

Ef þú lendir í vandræðum sendir þú beiðni á hjalp.unak.is. Kennitalan þín verður að fylgja með í beiðninni.

Í Uglu er mikilvægt að þú sinnir eftirfarandi:

  • Staðfestir skráningu námskeiða á hverju misseri
  • Skrá þig úr námskeiðum/prófum
  • Skrá þig til brautskráningar

Hér finnur þú hvenær þessi skráningartímabil eru.

SmáUglan

SmáUglan er handhægt app fyrir snjallsíma og spjaldtölvur. Þar er auðvelt að nálgast ýmsar upplýsingar sem notendur Uglu þurfa á að halda í erli dagsins: 

  • Dagurinn (stundatafla, fundir og viðburðir)
  • Námskeið
  • Tilkynningar
  • Próftafla
  • Þjóðskrá
  • Matseðill
  • Viðburðir
  • Símaskrá starfsfólks
  • Og fleira

Hér sækir þú SmáUgluna:

WiFi og Office 365

Háskólinn á Akureyri býður upp á þráðlaust net og skýjalausnir fyrir nemendur. Hægt er að prenta út gegn hóflegu gjaldi á ýmsum stöðum í háskólanum. Tengdu þig sem fyrst og vertu klár fyrir fyrsta skóladaginn.

Hvernig tengist ég WiFi - Eduroam?

Til þess að tengjast Eduroam þarf að láta snjalltækið/tölvuna leita að þráðlausu neti þegar þú ert í skólanum. Veljið eduroam úr þeim lista sem kemur upp. Þegar það er valið biður tækið um notendanafn og lykilorð.

Notendanafnið: notendanafniðþittviðHA@unak.is
Lykilorðið: sama og inn á Uglu

Hvernig tengist ég Office 365?

Hægt er að setja Office 365 upp á PC og MAC tölvur, iPad/iPhone og Android snjalltæki. Office pakkinn inniheldur meðal annars tölvupóst, word, excel, OneDrive, Skype for Business og fleira.

Allir notendur fá aðgang að 1 TB geymsludrifi á OneDrive. Þetta er mjög hentugt til að geyma öll skólagögn og meira til. OneDrive nýtist líka vel til hópavinnu.

Ýmsar flýtileiðir

Hér má finna ýmsar flýtileiðir sem gott er að vista í vafrann sinn (e. bookmark).

  • Innskráning á Microsoft svítuna, t.d. vefpóstur og OneDrive - 365.unak.is og office.unak.is
  • Æfingarprógram í boði HA fyrir líkamsræktarsalinn - fit.unak.is
  • Beiðnakerfi HA - hjalp.unak.is
  • Náms- og kennsluskrá skólaársins - kennsluskra.unak.is
  • Upplýsingasíða prófa - prof.unak.is
  • Leiðbeiningasíða HA - wiki.unak.is
  • Undirsíða HA inn á IRIS (Icelandic Research Information System) - iris.unak.is

Canvas rafrænt námsumsjónarkerfi

Canvas er rafræna námsumsjónarkerfið sem þú notar í náminu. Þú þarft að vera búin/n að sækja um notendanafn og fá lykilorð að tölvupósti til að skrá þig inn.

Notendanafn: notendanafniðþittviðHA@unak.is
Lykilorð: sama og inn á tölvupóstinn

SnjallDropinn þinn

Dropinn er allt í senn:

  • Aðgangur að prentkerfinu
  • Aðgangur að húsnæði HA
  • Aðgangur að líkamsrækt

Stúdentar fá Dropa til afnota gegn 2.000 króna gjaldi (1.500 kr. er endurgreitt þegar Dropanum er skilað).

Hvernig sæki ég um Dropann?

Þú sendir tölvupóst úr HA netfanginu þínu og sækir um Dropann, á kort@unak.is

Upplýsingar sem þurfa að koma fram í tölvupóstinum:

  • Fullt nafn
  • Kennitala

Þegar Dropinn er tilbúinn færðu tölvupóst og sækir hann svo á þjónustuborð nemendaskrár.

Ef þú ert fjarnemi getur þú sótt Dropann í fyrstu staðarlotu. 

Athugaðu! Ef þú týnir Dropanum þarftu að borga 2.000 krónur fyrir nýjan dropa.

Aðgangur að prentara með Dropanum

Prentarakerfið er í skýjalausn. Það gerir þér kleift að senda prentverk frá tölvu upp í prentskýið og ná svo í það á hvaða prentara sem er í skólanum.

Þú skráir þig inn í prentarakerfið með Dropanum.

Sjálfvirk stilling er á prenturunum. Prentað er báðu megin á síðuna í svarthvítu.

Kynntu þér prentarakerfið.

Get ég tengst netkerfi skólans með VPN?

Hægt er að tengjast netkerfi háskólans með VPN (Virtual Private Network) og fá þannig aðgang að gagnasöfnum líkt og tölvur sem tengdar eru staðarneti háskólans.

Þetta er ekki hægt að gera á þráðlausu neti skólans.

Kynntu þér hvernig þú setur upp VPN.

Líkamsrækt

Salurinn er opinn þeim sem eru með SnjallDropa að húsnæði háskólans. Tvisvar sinnum í viku er jóga fyrir nemendur og kennara. Notaðu tækifærið og settu líkamsrækt inn í stundatöfluna. Nánari upplýsingar.

Þín ábyrgð

Skipulag náms við Háskólann á Akureyri byggir á því að stúdentar skrái sig í námskeið og próf. Hver stúdent ber ábyrgð á námi sínu. Stúdentar þurfa því að gæta vel að reglum um skráningu og auglýst skráningartímabil. Því betur sem þeir sinna þessum skyldum sínum, þeim mun betri þjónustu geta þeir vænst að fá.

Fleiri gagnlegar upplýsingar