Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar 100% starf verkefnastjóra stjórnsýslu og rannsókna.
Starfið heyrir undir forstöðumann Miðstöðvar doktorsnáms og stjórnsýslu rannsókna. Starfsstöðin er við Háskólann á Akureyri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Yfirumsjón með miðlun rannsóknaupplýsinga í IRIS rannsóknargátt (Icelandic Research Information System) við Háskólann á Akureyri
- Umsjón með og stýrir þróun verkferla á notkun IRIS rannsóknargáttar, ráðgjöf til starfsfólks, leiðir teymisvinnu og samstarf innan háskólans, tekur út tölfræði, skýrslugerð ofl.
- Reglufylgni fyrir stór og alþjóðlega styrkt rannsóknarverkefni
- Styðja við fræðafólk og fjármálateymi við skýrslugerð og eftirfylgni með stærri rannsóknarstyrkjum
- Ritari doktorsnámsráðs og starfsmaður dómnefnda
Hæfniskröfur
- Meistarapróf sem nýtist í starfi er nauðsynlegt og doktorspróf er kostur
- Þekking og áhugi á rannsóknum ásamt reynslu af rannsóknarumhverfi er æskileg
- Þekking og reynsla af umsýslu rannsóknarverkefna og verkefnastjórnun er æskileg
- Reynsla af alþjóðlegum rannsóknarstyrkjum er kostur
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og umhverfi háskóla er kostur
- Starfið gerir miklar kröfur til framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, sjálfstæðra vinnubragða og skipulagshæfileika, víðtækrar reynslu í tölvunotkun og ábyrgðarkenndar
- Góð færni í íslensku og ensku jafnt töluðu sem rituðu máli er nauðsynleg og færni í einu skandinavísku tungumáli er kostur
Umsókn skal fylgja
- Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
- Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið
- Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur og er æskilegt að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.
Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 23.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Rósa Þórsteinsdóttir, forstöðumaður Miðstöðvar doktorsnáms og stjórnsýslu rannsókna:
Sækja um starf