Nám í menntavísindum er ætlað þeim sem vilja auka sérþekkingu sína og starfshæfni á sviði menntamála.
Þær áherslulínur sem eru í boði eru:
- Nám og læsi - lestrarfræði
- Nám og margbreytileiki - sérkennslufræði
- Stjórnun og forysta í lærdómssamfélagi
- Upplýsingatækni í námi og kennslu
- Starfstengd leiðsögn
Er námið fyrir þig?
- Hefur þú áhuga á að bæta við þekkingu þína á sviði menntamála?
- Vilt þú þjálfa hæfni þína til að takast á við mismunandi verkefni?
- Finnst þér þurfa að efla ákveðna þætti í skólastarfinu?
- Viltu verða hæfari í að mæta þörfum ólíkra nemenda?
- Hefur þú áhuga á að sérhæfa þig í stjórnun menntastofnana?
- Viltu auka hæfni þína í notkun upplýsingatækni í skólastarfi?
Fyrirkomulag náms
Brautarstjóri námslínunnar er Anna Elísa Hreiðarsdóttir.
Kennsla fer fram í staðbundnum námslotum í Háskólanum á Akureyri og er skyldumæting í þær. Jafnframt eru margvíslegir möguleikar notaðir við miðlun efnis og til gagnvirkra samskipta.
Hér getur þú séð hvenær námslotur eru.
Nemendur geta sótt námskeið á meistarastigi við aðrar deildir HA og í gesta- eða skiptinámi.
Áherslur námsins
Námsleiðin hentar nemendum með menntun sem tengist ekki þeim áherslusviðum sem eru í boði í menntavísunum við HA. Námsleiðin veitir nemendum tækifæri til þess að dýpka þekkingu sína og auka hæfni á áhugasviði sínu.
Þú getur skoðað skipulag námsins á Uglu, kennsluvef háskólans.
Möguleikar að námi loknu
Nám í menntavísindum hentar sérstaklega vel þeim sem hafa reynslu af fræðslustörfum og vilja dýpka þekkingu sína og efla sig í starfi. Jafnframt eykur það hæfni til að stunda frekara nám.
Inntökuskilyrði
Almenn krafa er að nemendur hafi lokið grunnnámi á háskólastigi og fengið að minnsta kosti fyrstu einkunn (7,25) í meðaleinkunn.
Almenn krafa er að umsækjendur hafi lokið grunnámi á háskólastigi og fengið að minnsta kosti 2. einkunn. Stúdentum er heimilt að hefja meistaranám ef þeir ljúka diplómanámi með 1. einkunn.