Í námslínunni er hlutverk heilsugæslunnar skoðað út frá samfélagslegri ábyrgð. Áhersla er lögð á vellíðan og heilbrigði einstaklinga og fjölskyldna.

Námið felur meðal annars í sér að greina tækifæri innan heilsugæslunnar. Ásamt því að þekkja skipulag almannavarna vegna náttúruhamfara og útbreiðslu smitsjúkdóma. Sérstök áhersla er lögð á að styrkja þig sem sjálfstæðan meðferðaraðila og undirbúa fyrir þverfaglega teymisvinnu.

Námið veitir prófgráðuna meistarapróf í heilbrigðisvísindum með áherslu á heilsugæslu.

Er námið fyrir þig?

  • Viltu dýpka skilning þinn á málefnum heilsugæslunnar?
  • Viltu auka við sérþekkingu þína?
  • Hefur þú áhuga á rannsóknum?
  • Langar þig að auka víðsýni þína?

Áherslur námsins

Sigríður Sía Jónsdóttir, umsjónarmaður námskeiðis aðstoðar þig við að setja þér markmið innan námslínunnar og velja saman námskeið.

Skyldunámskeið námslínunnar eru fimm, samtals 50 ECTS einingar. Meistararitgerðin er 60 ECTS og þú hefur val um 10 ECTS einingar.

Athugið að flest námskeið eru kennd annað hvert ár og taka þarf tillit til þess við gerð námsáætlunar.

Þú getur skoðað skipulag námsins á Uglu, kennsluvef háskólans.

Fyrirkomulag námsins

Námið er skipulagt þannig að mögulegt er að stunda vinnu samhliða því. Nemendur vinna verkefni í stað prófa.

Diplóma- og meistaranemendur eru hvattir til að mæta í allar lotur í námskeiðum. Til að standast lágmarkskröfur námskeiðs við framhaldsnámsdeild heilbrigðisvísindasviðs HA þarf nemandi að mæta í að minnsta kosti tvær* af þremur lotum í hverju námskeiði sem hann er skráður í.

Umsjónarkennara námskeiðs er frjálst að setja kröfu um mætingu í einhverja ákveðna lotu eða allar þrjár loturnar í námskeiði. Þessar kröfur geta verið mismunandi á milli námskeiða.

Mæting miðar við að mæta á staðinn eða með samþykki umsjónarkennara viðkomandi námskeiðs að mæta í gegnum Fjærveru eða Zoom. Ath. nemandi þarf að fá þjálfun hjá Kennslumiðstöð HA til að geta nýtt sér Fjærveru sem mætingu í námskeið.

*Ef nemandi getur af heilsufarsástæðum ekki mætt í lotu verður viðkomandi að hafa samband fyrirfram við umsjónarkennara námskeiðs og skila vottorði til skrifstofustjóra heilbrigðisvísindasviðs, fari umsjónarkennari fram á það. Umsjónarkennari ákvarðar hvaða viðbótarverkefni nemandi þarf að gera í stað mætingarinnar til að standast lágmarkskröfur námskeiðs.

Þú getur tekið meistaranámskeið við Háskólann á Akureyri eða aðra háskóla, innanlands eða utan.

Möguleikar að námi loknu

Brautskráðir nemendur með meistaranám í heilbrigðisvísindum fara í stjórnunarstörf innan heilbrigðiskerfisins, starfa sjálfstætt eða eru í stöðum sérfræðinga.

Námið er undirbúningur fyrir þá sem hyggja á doktorsnám.

Inntökuskilyrði

Umsækjendur um meistara- og diplómanám þurfa að hafa lokið bakkalárgráðu á sviði heilbrigðisvísinda eða skyldra greina með fyrstu einkunn (7,25 eða hærra) frá viðurkenndum háskóla. Ef til aðgangstakmarkana kemur við innritun ganga þeir umsækjendur fyrir sem hafa 2 ára starfsreynslu úr heilbrigðis- eða velferðargeiranum. Mikilvægt er að öll umbeðin gögn svo sem staðfest afrit af prófskírteinum, ferilskrá, kynningarbréf og ef við á starfsvottorð fylgi með umsókn.