Iðjuþjálfunarfræði er fjölbreytt og heillandi fræðigrein sem höfðar til þeirra sem eru forvitnir um fólk og samfélög og þær fjölmörgu leiðir sem hægt er nýta til að efla þátttöku, heilsu og vellíðan. Fagið byggir á bæði heilbrigðis- og félagsvísindum og beinist að samspili einstaklings, umhverfis og þeirrar iðju sem gefur lífinu merkingu. Einnig er félagslegt réttlæti og virðing fyrir fjölbreytileika mikilvægir hornsteinar fagsins.
Námið sem er einungis kennt við HA, er í stöðugri þróun í takt við þarfir samfélagsins og vaxandi þekkingu á sviði iðjuþjálfunar. Iðjuþjálfunarfræðideild býður upp á BS nám í iðjuþjálfunarfræði og MS nám í iðjuþjálfun til starfsréttinda sem skapar stúdentum aukin tækifæri til að dýpka þekkingu sína og undirbúa sig fyrir fjölbreyttan og krefjandi starfsvettvang.
Iðjuþjálfar starfa meðal annars við endurhæfingu, vinnuvistfræði, í skólum, heilsugæslu og á heimilum fólks. Þeir starfa einnig náið með einstaklingum, fjölskyldum og hópum í samfélaginu í að finna lausnir sem byggja á styrkleikum og áhuga hvers og eins og skapa þannig tækifæri til þátttöku.
Við deildina starfar öflugur hópur kennara og fagfólks sem leggur áherslu á vandaða kennslu, rannsóknir, nýsköpun og góðan námsanda. Við hlökkum til að taka á móti þér.