Kort og afgreiðslutími

Kort af háskólasvæði Háskólans á Akureyri

Háskólinn á Akureyri er á einstaklega fallegum stað í hjarta Akureyrarbæjar. Öll kennsla fer fram á einu svæði og húsnæði háskólans er með því besta sem gerist.

Almennur afgreiðslutími

Afgreiðsluborðið er opið frá kl. 8:00-15:30 virka daga og síminn frá kl. 9:00-15:30.

Háskólinn á Akureyri er opinn frá kl. 07:00-1800 virka daga. Læst um helgar. Til miðnættis alla daga er hægt að komast inn í húsnæðið með aðgangskorti og rafrænu aðgangsappi. Ath: Aðgangur verður óvirkur ef hann er ekki notaður í 120 daga.

Sumarlokun er fjórar vikur og hefst í byrjun annarrar viku júlímánaðar. Á þeim tíma er húsnæðið læst. Háskólinn opnar aftur eftir frídag verslunarmanna.

Aðstaðan:

Á háskólasvæðinu fer öll starfsemi háskólans fram. Þar er  lesaðstaða stúdenta og hópavinnuherbergi, ásamt matsölu, bókasafni, nemendaráðgjöf og líkamsrækt.

Nemendur hafa aðgang að læstum skápum, ljósriturum og tölvum.

Hér má nálgast allar nánari upplýsingar um háskólasvæðið og skoða myndir.