
Félagslífið er góð tilbreyting frá bókalestri og verkefnavinnu.
Það er skemmtilegt að taka þátt í félagslífinu. Þú hittir stúdenta úr öðrum deildum, víkkar sjóndeildarhringinn og stækkar tengslanetið.
Stúdentafélag Háskólans á Akureyri
Stúdentafélag við Háskólans á Akureyri er félag allra innritaðra stúdenta háskólans. SHA hefur yfirumsjón með félagslífi, skemmtunum, íþrótta- og fjölskyldumálum deildarfélaga.
- Félagið stendur vörð um hagsmuni stúdenta og er málsvari þeirra
- Það vinnur að bættri heilsu og líðan stúdenta og fjölskyldna þeirra
- Félagið veitir deildarfélögunum stuðning
SHA vinnur náið með starfsfólki háskólans að kynningarmálum og hagsmunamálum sem snerta stúdenta beint eða óbeint.
Vefverslun SHA
Í vefverslun SHA finnur þú gagnlegar vörur fyrir skólalífið, merktar bæði félaginu og háskólanum:
SHA appið
Allir stúdentar HA geta sótt um aðgang að SHA appinu sér að kostnaðarlausu til 15. september. Í appinu er:
- Rafræna stúdentakortið þitt
- Allir skólaafslættir á einum stað
- Yfirlit yfir viðburði SHA og miðasala
- Tilkynningar frá SHA og aðildarfélögum
- Upplýsingar um viðburði aðildarfélaga
Appið heitir Stúdentafélag HA og til þess að sækja það þarftu að:
- Skrá þig í aðildarfélag inn á sha.is, það kostar ekkert til 15. september
- Sækja forritið í App Store eða Play Store
- Skrá þig inn með HA netfangi
- Velja mynd
Ekki missa af stærstu viðburðum SHA!
SHA og aðildarfélög þess standa fyrir fjölbreyttum viðburðum yfir skólaárið. Mælt er með því að þú takir strax frá eftirfarandi dagsetningar svo þú missir ekki af stærstu viðburðunum:
- Sprellmót í september
- Stóra Vísó í Reykjavík í janúar
- Árshátíð SHA í febrúar
Aðildarfélög SHA - Deildarfélagið þitt