Markmiðið deildarinnar er að mennta fólk til rannsóknarstarfa, nýsköpunar og þróunar á heilbrigðissviði.
Meistaraverkefni
Þegar meistaranemar hafa lokið báðum aðferðafræðinámskeiðunum, Heilbrigði og heilbrigðisþjónusta: Staða, stefnur og straumar auk kjarnanámskeiðs á sínu kjörsviði geta þeir sótt um til verkefnastjóra framhaldsnámsins að hefja vinnu við meistaraverkefnið. Umsjónarkennari meistaraverkefna aðstoðar við úthlutun leiðbeinenda eftir þörfum.
Meistaraverkefni er 60 einingar og byggist á rannsókn. Efni rannsóknarinnar velur meistaraneminn í samráði við leiðbeinanda sinn. Meistaraneminn lýkur verkefninu með því að skrifa meistararitgerð og tímaritsgrein fyrir ritrýnt tímarit á fræðasviðinu eða með því skila inn fullbúnu handriti að tímaritsgrein. Hann gerir jafnframt grein fyrir niðurstöðum sínum í opnum fyrirlestri við Háskólann á Akureyri eða á öðrum opinberum vettvangi sem leiðbeinandi samþykkir.
Á klínískum áherslusviðum er meistaraverkefni 30 einingar.
Nánari upplýsingar má finna í Handbók deildarinnar sem aðgengileg er stúdentum í Uglu.
Einingafjöldi og tímalengd náms
Nám til meistaraprófs í heilbrigðisvísindum er 120 einingar. Fullt nám á einu skólaári er 60 einingar. Hámarksnámstími til meistaraprófs er 5 ár.
Kjörsvið
Athugið að flest námskeið eru kennd annað hvert ár og taka þarf tillit til þess við gerð námsáætlunar. Vinsamlegast skoðið skipulag náms í námskrá í Uglu, kennsluvef háskólans.
Heilbrigðisvísindi MS, 120 ECTS