Ugla og Canvas

Ugla og Canvas eru tölvukerfin sem þú notar í náminu. Segja má að Uglan er háskólinn þinn og Canvas er skólastofan þín. Nýnemar sækja notendanafn í samskiptagátt Uglu þegar þeir hafa greitt skráningargjöldin. Nánari leiðbeiningar finnur þú hér.

  • Uglan heldur utanum allt námið þitt, lokaeinkunnir námskeiða, upplýsingar og tilkynningar sem skólinn vill koma á framfæri
  • Canvas er námsumsjónarkerfið þitt

Skoðaðu sjálfshjálparsíðu kennslumiðstöðvar varðandi tölvukerfi.

Ugla

Uglan er þitt heimasvæði á innrivefnum. Þar finnur þú ýmsar upplýsingar svo sem stundatöflu, lokaeinkunnir, tilkynningar og námskeið.

Í Uglu er mikilvægt að þú sinnir eftirfarandi:

  • Staðfestir skráningu námskeiða á hverju misseri
  • Skrá þig úr námskeiðum/prófum
  • Skrá þig til brautskráningar

Hér finnur þú hvenær þessi skráningartímabil eru.

Canvas

Canvas er rafræna námsumsjónarkerfið sem þú notar í náminu. Þú þarft að vera búin/n að sækja um notendanafn og fá lykilorð að tölvupósti til að skrá þig inn. Athugið, ekki eru birtar lokaeinkunnir í Canvas. 

Notendanafn: notendanafniðþittviðHA@unak.is
Lykilorð: sama og inn á tölvupóstinn