Jafnréttisdagar: Staða fólks með örorkumat, endurhæfingarlífeyri og örorkustyrk

Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu, rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins verður með erindi á Jafnréttisdögum

Kristín Heba Gísladóttir (hún), framkvæmdastjóri Vörðu, rannsóknastofnunar vinnumarkaðarins verður með erindi á Jafnréttisdögum!

Viðburðurinn fer fram í stofu M102 í Háskólanum á Akureyri og verður einnig streymt á Facebook síðu Jafnréttisdaga.

Kristín Heba kynnir helstu niðurstöður skýrslu um stöðu fatlaðs fólks á Íslandi sem kom út í lok síðasta árs. Stór hluti fatlaðs fólks á Íslandi býr við sárafátækt og lífsskilyrði lífeyristaka eru töluvert verri en launafólks. Tæplega sjö af hverjum tíu geta ekki mætt óvæntum 80.000kr útgjöldum án þess að efna til skuldar og meira en helmingur metur fjárhagsstöðu sína verri nú en fyrir ári síðan. Staða einhleypra foreldra er sérstaklega alvarleg.

Facebook viðburður

Öll velkomin!