Lagareldi er krefjandi og spennandi grunnnám sem undirbýr þig fyrir störf í einni hraðvaxnustu atvinnugrein Íslands; fiskeldi og annarri ræktun í vatni og sjó.

Að námi loknu hefur þú þekkingu og færni til að takast á við sérhæfð störf í fiskeldisstöðvum og fyrirtækjum sem starfa á sviði landeldis, sjókvíaeldis, þörunga- og þararæktunar, skeldýraræktunar og annarra greina tengdra lagareldi.

Námið er samstarfsverkefni Háskólans á Akureyri og Háskólans á Hólum.

Er námið fyrir þig?

  • Hefur þú áhuga á náttúru, auðlindum og hafinu?
  • Heillar fiskeldi, þörungaeldi eða skeldýraræktun þig?
  • Viltu menntun sem nýtist beint í störfum innan greinarinnar?
  • Langar þig að starfa í ört vaxandi atvinnugrein með mikla framtíðarmöguleika?
  • Hefur þú áhuga á rannsóknum, þróun og nýsköpun?
  • Dreymir þig um að taka þátt í uppbyggingu eða stofna eigið fyrirtæki?

Áherslur námsins

Lagareldi er raungreinanám þar sem líffræði, efnafræði og stærðfræði mynda sameiginlegan grunn. Námið byggir á sterkri tengingu við atvinnulífið og raunveruleg verkefni innan greinarinnar.

Nemendur geta valið á milli tveggja áherslusviða:

  • Líftækniáherslu
  • Sjávarútvegsfræðiáherslu

Sérhæfð námskeið í fiskeldi eru kennd við Háskólann á Hólum, en námskeið í líftækni eða sjávarútvegsfræði við Auðlindadeild HA. Þannig færðu heildstæða sýn á alla virðiskeðju lagareldis, frá líffræði og framleiðslu til rekstrar og markaða.

Þú getur skoðað skipulag námsins neðar á síðunni og í Uglu, kennsluvef háskólans.

Sveigjanlegt nám

Námið er skipulagt sem sveigjanlegt nám við Háskólann á Akureyri og í fjarnámi með staðbundnum lotum við Háskólann á Hólum. Ekki er gerð krafa um daglega viðveru á háskólasvæðum háskólanna. Þess er krafist af stúdentum að þeir mæti í kennslulotur og séu virkir meðan á þeim stendur. 

  • Flestir fyrirlestrar eru teknir upp og aðgengilegir á kennsluvef
  • Flest verkefni og verkefnaskil eru rafræn
  • Skyldumæting er í tvær verklegar lotur á Akureyri þar sem áhersla er lögð á rannsóknir, umræður og verkefnavinnu
  • Skyldumæting er í nokkrar staðbundnar lotur á Hólum eða hjá samstarfsfyrirtækjum

Kynntu þér því vel dagsetningar verklegra lota sem eru birtar með góðum fyrirfara:

Möguleikar að námi loknu

 Þú útskrifast með BS-gráðu í lagareldi, sem veitt er sameiginlega af báðum háskólum.

Námið opnar leið að fjölbreyttum störfum í:

  • landeldi og sjókvíaeldi
  • þörunga- og þararæktun
  • skeldýraræktun
  • rannsóknar- og þróunarstarfi
  • nýsköpun og rekstri

Lagareldi er ört vaxandi grein í íslensku atvinnulífi og mikil þörf er fyrir vel menntaðan mannauð. Námið veitir traustan grunn fyrir þátttöku í uppbyggingu og þróun greinarinnar til framtíðar.

Félagslífið

Félagslíf er mikilvægur þáttur háskólanáms og er félagslíf nemenda við HA öflugt.

Allir stúdentar við háskólann eru í Stúdentafélagi Háskólans á Akureyri (SHA) en einnig er hver deild með sitt nemendafélag. Stafnbúi er félag stúdenta við Auðlindadeild og þú getur nálgast nánari upplýsingar um félagið á Facebook.

Inntökuskilyrði

Til að sækja um þarft þú að uppfylla eitt af eftirfarandi:

  • Stúdentspróf
  • Lokapróf á þriðja hæfniþrepi úr framhaldsskóla
  • Jafngilt erlent próf
  • 60 ECTS einingar frá viðurkenndum háskóla
  • Útskrift úr verk- og raunvísindadeild Háskólabrúar Keilis

Gerð er krafa um að umsækjendur skilji ritaða og talaða íslensku.

Námið byggir að hluta á raungreinum, þar sem líffræði, efnafræði og stærðfræði eru kjarnagreinar. Hafi umsækjandi ekki lokið einingum í þessum greinum er mælt með undirbúningsnámskeiðum í efnafræði og stærðfræði. Slík námskeið eru í boði hjá Símenntun HA í lok ágúst.

Undanþágur:
Umsækjendur 25 ára og eldri sem ekki uppfylla almenn inntökuskilyrði en hafa lokið að lágmarki 90 einingum (130 fein) á framhaldsskólastigi geta sótt um undanþágu.

Hér getur þú lesið meira um inntökuskilyrði háskólans.

Skiptinám

Allir nemendur eiga kost á að taka hluta af námi sínu við erlenda samstarfsháskóla. Þú færð niðurfellingu á skólagjöldum gestaskólans og greiðir eingöngu innritunargjald í HA. Alþjóðafulltrúi aðstoðar þig við að sækja um námið, húsnæði og nemendastyrk.

Þú getur smellt hér og lesið meira um skiptinám.

Umsagnir

Hér er í boði nýtt nám, þróað sameiginlega af Háskólanum á Akureyri og Háskólanum á Hólum. Nám til BS gráðu í lagareldi hefur ekki verið áður í boði á Íslandi og svarar námið ört vaxandi þörf fyrir vel menntaðan mannauð innan þeirrar hratt vaxandi atvinnugreinar sem fiskeldi og lagareldi er. Um er að ræða lotubundið, sveigjanlegt nám sem veitir einstaklingum á öllu landinu tækifæri til að sækja námið. Áhersla er lögð á að efla þekkingu, færni og frumkvæði einstaklinga í fjölbreyttum störfum innan greinarinnar.

Rannveig Björnsdóttir
umsjónamaður lagareldisnámsins