Fundur var haldinn fimmtudaginn 29. janúar 2026 á Sólborg, Norðurborg og í gegnum fjarfundabúnað á Teams.
Áslaug Ásgeirsdóttir rektor setti fund kl. 13:30
Mætt voru auk hennar:
Unnar Jónsson fulltrúi ráðherra
Guðmundur Kristján Óskarsson fulltrúi háskólasamfélagsins
Sigríður Sía Jónsdóttir fulltrúi háskólasamfélagsins
Rakel Rún Sigurðardóttir fulltrúi stúdenta
Ottó Elíasson fulltrúi Háskólaráðs
Bryndís Fiona Ford fulltrúi Háskólaráðs
Einnig mætt:
Sindri S. Kristjánsson skrifstofustjóri rektorsskrifstofu sem ritar fundargerð
Gestir:
Helga María Pétursdóttir, forstöðumaður fjármála og greininga
Hólmar Erlu Svansson, framkvæmdastjóri háskólaskrifstofu
Rektor kynnti dagskrá. Rakel Rún Sigurðardóttir fulltrúi stúdenta óskaði eftir sérstakri umræðu um mál á dagskrá fundarins undir bókfærð mál til samþykktar í samræmi við 3. gr. starfsreglna háskólaráðs.
1. Fjármál og rekstur
2601068
Helga María Pétursdóttir og Hólmar Erlu Svansson sátu fund háskólaráðs undir þessum lið.
Helga María gerði grein fyrir rekstrarniðurstöðu háskólans fyrir árið 2025 eins og hún lítur út í dag. Gert er ráð fyrir u.þ.b. 70 mkr. afgangi af rekstri háskólans árið 2025. Þessar upplýsingar eru þó með þeim fyrirvara að enn á eftir að gera upp sérstakt framlag sem háskólinn var úthlutað árið 2025 vegna náms í lögreglufræði.
Háskólaráð ræddi rekstur fræðasviða og hvernig rekstrarniðurstaða þeirra er ólík þrátt fyrir að byggja á samskonar áætlanagerð. Jafnframt ræddi háskólaráð ástæður sem liggja að baki neikvæðrar rekstrarniðurstöðu hjá einstaka einingum stoðþjónustu og stjórnsýslu. Enn fremur var rætt um rekstur sk. sértekjueininga.
2. Fyrirhugaðar breytingar á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008
2601009
Rektor greindi háskólaráði frá þeim breytingum sem fyrirhugað er að gera á lögum um opinbera háskóla, nr. 85/2008. Á yfirstandandi löggjafarþingi hefur verið mælt fyrir tveimur frumvörpum þar sem lagt er upp með breytingar á lögunum. Annars vegar til að gera opinberum háskólum kleift að koma á fót sk. háskólasamstæðu. Hins vegar að veita opinberum háskólum heimild til að leggja skólagjöld á nemendur sem koma frá ríkjum utan Evrópska efnahagssvæðisins.
Háskólaráð ræddi frumvörpin tvö og hver áhrif þeirra verða á starfsemi Háskólans á Akureyri ef þau verða samþykkt í framlagðri mynd. Rektor útskýrði að eins og frumvarpið sem snýr að gjaldtöku vegna stúdenta sem koma utan EES gerir ráð fyrir verður óumflýjanlegt að innheimta þessi gjöld, þrátt fyrir að frumvarpið setji fram heimild en ekki skyldu til gjaldtökunnar. Fjármögnunarlíkan háskóla ræður þar mestu um. Rektor skýrði frá því að Háskólinn á Akureyri hafi þegar komið á framfæri umsögn um frumvarpið sem snýr að háskólasamstæðunni þegar það frumvarp var kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Við einhverjum af þeim athugasemdum var brugðist. Í vinnslu sé önnur umsögn til að leggja áfram áherslu á þau efnisatriði sem ekki hefur enn verið brugðist við. Í umræðu háskólaráðs um samstæðufrumvarpið kom fram að sérstaklega er í frumvarpinu fjallað um sk.
aðstöðumun milli akademísks starfsfólks Háskóla Íslands annars vegar og Háskólans á Hólum hins vegar, hinum síðarnefndu í óhag. Í frumvarpinu er vísað til þess að þessi aðstöðumunur sé áætlaður á bilinu 50-100 mkr. sem þurfi að fjármagna til framtíðar og tillit þurfi að taka til þessara aðstæðna í fjármögnunarlíkani háskóla frá og með fjárlagaárinu 2027.
Undir þessum lið greindi rektor háskólaráði einnig frá þeirri vinnu sem farið hefur fram á rektorsskrifstofu við að greina áhrif nýrrar atvinnustefnu stjórnvalda til 2035. Umsögn með áherslum háskólans var komið á framfæri á fyrstu stigum málsins þegar áform um atvinnustefnuna voru kynnt. Þá sótti rektor nýlega fund með nýstofnuðu atvinnustefnuráði forsætisráðuneytisins ásamt rektor Háskóla Íslands og Háskólans í Reykjavík.
Vegna viðurkenningar á aðstöðumun milli akademískra starfsmanna í frumvarpi til breytinga á lögum um opinbera háskóla (háskólasamstæður) fer háskólaráð Háskólans á Akureyri fram á það að menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið geri úttekt á því hvort samskonar aðstöðumun sé að finna milli akademískra starfsmanna Háskóla Íslands og Háskólans á Akureyri. Háskólaráð felur rektor að fylgja þessu eftir og knýja á um að slík úttekt fari fram.
3. Ábending frá iðjuþjálfunarfræðideild vegna breytinga á reglum um námsmat
2601045
Rektor gerði grein fyrir erindi sem nýverið barst háskólaráði frá iðjuþjálfunarfræðideild. Erindið hefur að geyma ábendingu í tengslum við breytingar á reglum um námsmat sem samþykktar voru á 475. fundi háskólaráðs. Er það gagnrýnt að reglurnar hafi tekið gildi þegar misserið var þegar hafið og allur undirbúningur kennara og upplýsingagjöf til nemenda hafi tekið mið af reglunum eins og þær litu út fyrir nefnda breytingu. Mælst er til þess í erindinu að reglur um námsmat taki ekki breytingum eftir að misseri er hafið.
Háskólaráð þakkar Iðjuþjálfunarfræðideild fyrir ábendinguna og hefur þau sjónarmið sem í henni koma fram að leiðarljósi við samskonar breytingar í framtíðinni.
4. Ályktun félagsvísindadeildar um málefni Grænlands
2601075
Rektor skýrði háskólaráði frá ályktun félagsvísindadeildar hug- og félagsvísindasviðs frá 21. janúar sl. Í ályktuninni eru framferði stjórnvalda í Bandaríkjunum gagnvart Grænlandi og Dönum fordæmt og fullri samstöðu lýst með grænlensku þjóðinni, starfsfólki og nemendum við Ilisimatusarfik háskóla og öllum íbúum landsins. Í ályktunni er jafnframt skorað á háskólaráð að lýsa yfir fullum stuðningi við málstað Grænlendinga og Dana og fara þess á leit að samstarfsnefnd íslenska háskólastigsins geri slíkt hið sama.
Háskólaráð lýsir yfir áhyggjum af stöðunni og leggur áherslu á að alþjóðalög verði virt. Háskólinn á Akureyri á í góðu samstarfi við Ilisimatusarfik háskóla og Grænlendinga almennt og hyggst halda því áfram.
5. Bókfærð mál til samþykktar
- Breyting á reglum um gjaldskrá Háskólans á Akureyri, nr. 1211/2020
2409069
Rakel Rún Sigurðardóttir fulltrúi stúdenta óskar bókað:
Stúdentafélag Háskólans á Akureyri harmar það að háskólinn þurfi að grípa til þess að hækka skrásetningargjöld vegna ákvörðunar stjórnvalda um að
fullfjármagna ekki opinberu háskólana. Nýsköpun og vexti háskólans eru nú þegar settar verulegar skorður með nýju fjármögnunarlíkani háskóla og hætt við að hærri þröskuldar í formi aukinnar kostnaðarþátttöku stúdenta muni enn fremur leggja stein í götu framtíðaruppbyggingar Háskólans á Akureyri.
Meirihluti háskólaráðs samþykkir breytinguna. Rakel Rún Sigurðardóttir fulltrúi stúdenta greiðir atkvæði gegn breytingunni.
6. Til fróðleiks
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 15:34.