Sandra Sif Gunnarsdóttir

Meistaranám við Háskólann á Akureyri stendur fyrir sínu. Frábært nám og uppsetning þess gerði það að verkum að ég gat sinnt því samhliða mínu starfi, sem var ekki aðeins hagkvæmt fyrir mig heldur dýrmæt reynsla þar sem akademíkin og klíníkin tengdust á mikilvægan hátt. Ég er mjög ánægð að hafa valið mér þetta nám, sem hefur nýst mér vel eftir útskrift. Ég hef góða fagþekkingu, öryggi í þekkingaröflun og hef fengið góða þjálfun í rannsóknarskrifum.