Laust starf: Lektor í menntunarfræði

Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa 100% stöðu lektors í menntunarfræði með áherslu á félagsfræði menntunar, félagsgreinar og sögu við Kennaradeild Hug- og félagsvísindasviðs.

Helstu verkefni og ábyrgð

Helstu verkefni eru kennsla á bakkalár- og meistarastigi og rannsóknir á sviði félagsfræði menntunar, samfélagsgreina og sögu, auk þess að taka virkan þátt í stjórnsýslu innan deildarinnar, akademísku samfélagi og umhverfi háskólans.

Starfsstöð er á Akureyri. Næsti yfirmaður er forseti Kennaradeildar. Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Ráðningartími er tímabundinn til fimm ára en viðkomandi getur óskað eftir ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum samkvæmt reglum nr. 726/2023 um ótímabundna ráðningu akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri. Framgangur í stöðu dósents eða prófessors kemur til greina við ráðningu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar.

Við Kennaradeild HA er boðið upp á nám í kennarafræði (B.Ed.), meistaranám til kennsluréttinda (M.Ed. og MT), rannsóknartengt meistaranám (MA) í menntavísindum og doktorsnám í menntavísindum (Ph.D.). Einnig er boðið upp á diplómanám í leikskólafræði og menntavísindum. Nemendur við deildina eru um 620 og starfsfólk 23.

Leitað er eftir háskólakennara sem hefur þekkingu á menntunarfræði og getur kennt námskeið á sviði samfélagsgreina og megindlegrar aðferðafræði. Sérstaklega er leitað eftir einstaklingi með rannsóknaráherslur á sviði félagsfræði menntunar. Mikilvægt er að einstaklingur sem ráðinn er taki virkan þátt í daglegu akademísku samfélagi háskólans og nærsamfélagsins á Norðurlandi.

Hæfniskröfur

  • Umsækjandi skal hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla.
  • Æskilegt er að umsækjandi hafi leyfisbréf til kennslu.
  • Kennslureynsla á háskólastigi telst æskileg og birtingar á alþjóðlegum, ritrýndum vettvangi eru nauðsynlegar.
  • Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni.
  • Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir Kennaradeildar.
  • Gott vald á íslensku og ensku er nauðsynlegt.
  • Umsækjandi sem talar ekki íslensku nú þegar þarf að öðlast vald á tungumálinu á starfstímanum í samræmi við málstefnu háskólans.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.
  • Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum á íslensku eða ensku.
  • Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaráherslur og kennslusvið ef til ráðningar kæmi.
  • Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eftir því sem við á.
  • Tilnefna skal þrjá meðmælendur, æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi starfi eða fyrra starfi umsækjanda.
  • Þær fræðilegu ritsmíðar sem umsækjandi telur sín bestu verk (allt að þremur ritum). Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.

Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglur nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri og reglur nr. 724/2023 um nýráðningar akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 19.12.2025

Nánari upplýsingar veitir

Sækja um starf