Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa 100% stöðu lektors við Sálfræðideild, innan Hug- og Félagsvísindasviðs.
Leitað er að sérfræðingi á sviði sálfræði. Umsækjendur af öllum sviðum sálfræðinnar eru hvattir til að sækja um, en áhersla er þó lögð á eftirfarandi svið: klínísk sálfræði, vinnu- og skipulagssálfræði, persónuleikasálfræði, heilsusálfræði, hugfræði, tölfræði, megindleg og eigindleg aðferðafræði. Umsækjendur skulu hafa sterkan grunn í aðferðafræði rannsókna.
Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2026. Ráðningartími er tímabundinn til fimm ára en viðkomandi getur óskað eftir ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum samkvæmt reglum nr. 726/2023 um ótímabundna ráðningu akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri. Framgangur í stöðu dósents eða prófessors kemur til greina við ráðningu hafi umsækjandi hæfi til þess að mati dómnefndar.
Helstu verkefni og ábyrgð
Helstu verkefni eru kennsla í grunn- og meistaranámi og rannsóknir við Háskólann á Akureyri á sviði sálfræði. Næsti yfirmaður er forseti Sálfræðideildar. Starfsstöð er á Akureyri.
Allt grunn- og meistaranám í sálfræði er kennt í sveigjanlegu námi. Við Sálfræðideild háskólans eru um 300 stúdentar í grunn-, meistara- og doktorsnámi. Deildin er hluti af Hug- og félagsvísindasviði skólans. Við Sálfræðideild eru meðal annars stundaðar rannsóknir á sviðum hugrænna taugavísinda, hugfræði, skynjunarsálfræði, klínískrar íþróttasálfræði, félagssálfræði, hagnýtrar atferlisgreiningar, sálmælinga og þroskasálfræði, auk þverfaglegra rannsókna innan Háskólans á Akureyri og í samstarfi við erlenda samstarfsaðila. Við deildina starfa 8 akademískir starfsmenn, auk fjölda stundakennara.
Hæfniskröfur
- Umsækjandi skal hafa þekkingu og reynslu í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu staðfest með doktorsprófi frá viðurkenndum háskóla.
- Kennslureynsla á háskólastigi telst mikill kostur og reynsla af vísindastörfum er nauðsynleg.
- Umsækjandi skal sýna fram á hæfni til kennslu á háskólastigi og til að leiða, þróa og miðla vísindarannsóknum.
- Starfsleyfi sálfræðings, útgefið af embætti landlæknis, eða sambærilegu stjórnvaldi í öðru landi, telst kostur.
- Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni.
- Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir kennslu- og rannsóknaþarfir Sálfræðideildar.
- Gott vald á íslensku telst mikill kostur.
- Gert er ráð fyrir að umsækjandi sem hefur ekki íslensku að móðurmáli hafi 1) framúrskarandi kunnáttu í ensku, bæði í ræðu og riti, og 2) tileinki sér íslenskukunnáttu.
Umsóknarfrestur er til og með 15. desember 2025
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Starfshlutfall er 100%
Starfsstaður:
Gert er ráð fyrir að starfsstöð sé á Akureyri.
Gert er ráð fyrir að umsækjandi hafi starfsstöð á Akureyri. Lögð er áhersla á staðbundna nærveru og virka þátttöku í daglegu starfi. Slík nærvera er talin nauðsynleg fyrir starfsemi, þróun og uppbyggingu deildar í örum vexti og til að styrkja fræðilegt samfélag innan Háskólans á Akureyri.
Umsókn skal fylgja:
- Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.
- Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum á íslensku eða ensku.
- Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaráherslur og kennslusvið ef til ráðningar kemur.
- Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eftir því sem við á.
- Tilnefna skal þrjá meðmælendur. Æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.
- Þær fræðilegu ritsmíðar sem umsækjandi telur sín bestu verk (allt að þremur ritum). Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skal umsækjandi gera grein fyrir framlagi sínu til verksins.
Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla, reglur nr. 694/2022 fyrir Háskólann á Akureyri og reglur nr. 724/2023 um nýráðningar akademísks starfsfólks við Háskólann á Akureyri. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin.
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynja og hvetur alla hæfa umsækjendur, óháð kyni, til að sækja um laus störf.
Nánari upplýsingar veitir
Richard Eirikur Taehtinen, deildarforseti Sálfræðideildar, richard@unak.is.
Sækja um starf