HA tekur vel á móti alls kyns syngjandi verum á öskudaginn

Velkomin í Háskólann á Akureyri á öskudaginn
HA tekur vel á móti alls kyns syngjandi verum á öskudaginn

Við tökum vel á móti syngjandi verum í Háskólanum á Akureyri á öskudaginn!

Hægt er að syngja og fá glaðning á eftirfarandi stöðum:

  • Bókasafn HA
  • Kaffi Borg - mötuneyti
  • Borgir rannsóknarhús
  • Starfsstöð okkar í Hafnarstræti 95 á fjórðu hæð

Hér má nálgast kort af háskólasvæðinu, gott er að ganga inn um G-inngang til að heimsækja Bókasafnið og Kaffi Borg.

Við hlökkum til að sjá ykkur!