Meistaranám í iðjuþjálfun við Háskólann á Akureyri sem er rannsóknamiðað nám auk þess sem nemendur öðlast faglega færni til að starfa sem iðjuþjálfar. Að námi loknu er hægt að sækja um starfsleyfi frá Embætti landlæknis. Námið undirbýr þig markvisst fyrir að faglegt starf með einstaklingum, hópum og samfélögum. Samhliða öflugri starfsþjálfun öðlast þú fræðilega og rannsóknartengda hæfni sem styrkir þig í faglega færni í starfi og frekara nám.

Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á starfsréttindanám í iðjuþjálfun.

Er námið fyrir þig?

  • Viltu starfa sem löggiltur iðjuþjálfi?
  • Hefur þú áhuga á að dýpka fræðilega þekkingu þína og rannsóknarfærni?
  • Viltu vinna með fólki á öllum aldri og stuðla að aukinni þátttöku og lífsgæðum?
  • Hefur þú áhuga á þróun Íslenskra rannsókna í iðjuþjálfun?

Áherslur námsins

Markmið námsins er að þú verðir sérfræðingur í daglegri iðju og í að vinna með iðjuvanda sem hamlar fólki í daglegu lífi, hindrar þátttöku og hefur áhrif á heilsu og lífsgæði.

Námið er rannsóknamiðað og leggur áherslu á gagnreynda nálgun, fræðilega greiningu og þróun faglegrar starfshæfni.

Stúdentar vinna 30 ECTS meistararitgerð þar sem tekist er á við sjálfstætt rannsóknarverkefni á sviði iðjuþjálfunar. Með ritgerðinni dýpkar þú þekkingu þína á afmörkuðu viðfangsefni, þjálfast í rannsóknaraðferðum og leggur þitt af mörkum til þróunar fagsins.

Vettvangsnám er stór og mikilvægur hluti námsins og nemur samtals 800 klukkustundum í fjölbreyttu starfsumhverfi iðjuþjálfa. Þar tekst þú á við raunveruleg viðfangsefni undir leiðsögn reyndra iðjuþjálfa og færð markvissa þjálfun fyrir starf iðjuþjálfa.

Þú hefur einnig kost á að stunda hluta af vettvangsnáminu við erlendar samstarfsstofnanir.

Þú getur skoðað skipulag námsins á Uglu, kennsluvef háskólans

Fyrirkomulag námsins

Meistaranámið er krefjandi og krefst aga og skipulagðra vinnubragða.
Fræðilegur hluti námsins fer að hluta til fram rafrænt, en námið hefur ekki sama sveigjanleika og grunnnámið þar sem vettvangsnámið fer að jafnaði fram á hefðbundnum dagvinnutíma. Auk þess er skyldumæting í lotur þar sem lögð er áhersla á þjálfun í faglegri færni í starfi iðjuþjálfa.

Stúdentar fá ekki laun í vettvangsnámi þar sem um nám undir handleiðslu er að ræða, ekki starf. Þú getur þó valið að dreifa náminu yfir tvö ár í stað eins, sem getur skapað svigrúm ef þú hyggst vinna samhliða námi.

Hægt er að óska eftir vettvangsnámi í heimabyggð, en staðsetning ræðst af framboði og aðstæðum hverju sinni.

Hér getur þú séð hvenær námslotur og vettvangsnám eru.

Möguleikar að námi loknu

Að námi loknu getur sótt um leyfi frá Embætti landlæknis til að starfa sem iðjuþjálfi á Íslandi.

Meistaragráðan veitir jafnframt traustan grunn til frekara náms, doktorsnáms eða þátttöku í rannsóknum og þróunarverkefnum innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu.

Iðjuþjálfar starfa á breiðum vettvangi, meðal annars:

  • innan heilbrigðis- og félagsþjónustu
  • í skólakerfinu
  • hjá stofnunum og félagasamtökum
  • hjá fyrirtækjum á almennum vinnumarkaði

Iðjuþjálfar eru ein af lykilstéttum innan forvarna, vinnuverndar og endurhæfingar.

Alþjóðleg viðurkenning námsins veitir einnig tækifæri til starfa og frekara náms erlendis.

Nánar má lesa um iðjuþjálfun á heimasíðu Iðjuþjálfafélags Íslands

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði er BS-gráða í iðjuþjálfunarfræði frá Háskólanum á Akureyri með að lágmarki 7,25 í meðaleinkunn. Auk þess getur umsögn vinnuveitanda getur haft áhrif á inntöku. Ef fjöldi umsækjenda sem uppfylla skilyrði er meiri en unnt er að taka inn verður umsóknum forgangsraðað út frá lokaeinkunn grunngráðu.

Aukin fjöldatakmörkun er í rannsóknamiðaða meistaranámið og ræðst inntaka árlega af kennslukrafti, aðstöðu, framboði vettvangsplássa og leiðsagnargetu í rannsóknarverkefnum.

Hér getur þú lesið meira um inntökuskilyrði háskólans.

Skiptinám

Stúdentar í iðjuþjálfun á meistarastigi eiga kost á að taka hluta af vettvangsnámi sínu við erlendar samstarfsstofnanir.

Þú getur smellt hér og lesið meira um skiptinám.

Umsagnir

Námið í iðjuþjálfun var ótrúlega gagnlegt og undirbjó mig á fjölbreytta vegu fyrir atvinnulífið en var ekki síður mótandi persónulega. Ég upplifi starfsfmöguleika mína einungis takmarkast við áhugasvið mitt með menntunina í farteskinu

Alda Pálsdóttir
verkefnastjóri í endurhæfingarbúsetu Reykjavíkurborgar

Ég hafði verið í háskólanámi áður og unnið við allt milli himins og jarðar. Að þeirri reynslu fenginni þá veit ég að það er vandfundið háskólanám sem er jafn gagnlegt og opnar jafnmargar dyr í lífinu, bæði í leik og starfi, og iðjuþjálfun. Ég er stolt af að vera iðjuþjálfi og þakklát fyrir að hafa fattað að hún er til.

Guðrún Friðriksdóttir
verkefnastjóri í endurhæfingarbúsetu Reykjavíkurborgar