Háskólaráð HA hækkar skrásetningargjald í 100.000 kr.
Háskólaráð Háskólans á Akureyri ákvað á fundi sínum þann 29. janúar 2026 að gera breytingar á reglum um gjaldskrá háskólans sem felur í sér hækkun á skrásetningargjaldi fyrir skólaárið 2026-2027 úr 75.000 kr. í 100.000 kr. Ákvörðunin tekur þegar gildi.
Háskólaráð samþykkti breytingu
Í nóvember samþykkti Alþingi breytingu á 24. gr. laga um opinbera háskóla, nr. 85/2008. Breytingin veitir opinberum háskólum nú heimild til að innheimta skrásetningargjöld, allt að 100.000 krónur á hvern stúdent sem innritast. Skrásetningargjaldi er ætlað að standa straum af kostnaði fyrir þá þjónustu sem háskólinn veitir stúdentum utan kennslu og því ekki um eiginlegt skólagjald að ræða.
Meðal þeirra gagna sem lágu til grundvallar ákvörðun Háskólaráðs var greining unnin á Háskólaskrifstofu Háskólans á Akureyri í tengslum við útreikninga á kostnaði umsýslu hvers stúdents. Greiningin leiddi í ljós að til að standa að fullu undir kostnaði af þeirri þjónustu sem háskólinn veitir stúdentum utan kennslu hefði gjaldið þurft að vera rúmlega 170.000 krónur. Í ljósi þess taldi Háskólaráð ekki annað forsvaranlegt en að nýta breytta heimild í lögum um opinbera háskóla og hækka gjaldið.
„Það er náttúrulega alltaf erfitt að hækka gjöld á stúdenta en staðreyndin er sú að sú þjónusta sem gjaldið á að standa undir hefur hækkað mikið, án þess að fjárveitingar til háskólakerfisins hafi hækkað,“ segir Áslaug Ásgeirsdóttir, rektor háskólans, en bætir við: „Það er þó hagur háskólanna og stúdenta að halda áfram að berjast saman fyrir betri fjármögnun.“
Á fundi Háskólaráðs lagði fulltrúi stúdenta í ráðinu, Rakel Rún Sigurðardóttir, fram eftirfarandi bókun:
Stúdentafélag Háskólans á Akureyri harmar það að háskólinn þurfi að grípa til þess að hækka skrásetningargjöld vegna ákvörðunar stjórnvalda um að fullfjármagna ekki opinberu háskólana. Nýsköpun og vexti háskólans eru nú þegar settar verulegar skorður með nýju fjármögnunarlíkani háskóla og hætt við að hærri þröskuldar í formi aukinnar kostnaðarþátttöku stúdenta muni enn fremur leggja stein í götu framtíðaruppbyggingar Háskólans á Akureyri.
Meirihluti Háskólaráðs samþykkir breytinguna. Rakel Rún Sigurðardóttir greiðir atkvæði gegn breytingunni.
Uppfærð gjaldskrá
Gjaldskrá Háskólans á Akureyri eftir breytingar á skrásetningargjöldum er svohljóðandi:
- Skrásetningargjald við skráningu í nám: kr. 100.000
- Skrásetningargjald – nýskráning á vormisseri: kr. 75.000
- Lagt er 15% álag á skrásetningargjald sé það greitt utan auglýsts greiðslutímabils.
- Öryrkjar fá 50% afslátt af skrásetningargjaldi.
Hér má nálgast gjaldskrá háskólans.