5. febrúar 2026 kl. 08:30-10:00
Jafnréttisdagar 2026
Er hægt að mæla samfélagsáhrif skapandi greina?
Rannsóknasetur skapandi greina, í samstarfi við CCP, Listaháskóla Íslands og Háskólann á Akureyri, býður í samtal um skapandi greinar fimmtudaginn 5.febrúar klukkan 8:30 – 10 í húsakynnum CCP Í Grósku, 3. hæð, að Bjargargötu 1,102 Reykjavík.
Hvernig mótar skapandi starfsemi einstaklinga og samfélög? Er hægt að greina eða mæla þessi áhrif? Geta mælingar varpað nýju ljósi á gildi skapandi greina í samtímanum eða opnað nýja sýn á hlutverk þeirra? Þessar spurningar verða umræðuefni fundarins, sem samanstendur af kynningum, pallborðsumræðum og samtali við áhorfendur.
Fundarstjóri er Þorbjörg Daphne Hall, prófessor. Þátttakendur eru Hlynur Jónasson, umsjónarmaður Kúnstpásu, Lara Hoffmann, nýdoktor og Martyna Karolina Daniel, verkefnastjóri aðgengi og samfélagslegrar þátttöku á Borgarbókasafninu.
Viðburðinum verður streymt og hann verður birtur á Youtube og vefsíðu Jafnréttisdaga 9. febrúar kl. 15.
Öll velkomin!