Fjölgun karla í hjúkrunarnámi – Staðan á stöðunni

12. febrúar 2026 kl. 12:00-13:00
Jafnréttisdagar 2026

Fjölgun karla í hjúkrunarnámi síðustu 10 árin. Hvað hefur áunnist og hvernig?

Dr. Eydís Kristín Sveinbjarnardóttir, prófessor við HÍ & Dr. Gísli Kort Kristófersson, prófessor við HA hafa tekið þátt í ýmsum verkefnum síðustu árin til að auka hlutfall karla í hjúkrun við HA og HÍ með nokkuð undraverðum árangri. Þau munu fara yfir verkefnin sem þau hafa tekið þátt í og niðurstöður þeirra ásamt því að reyna að greina kjarnann í því af hverju verkefnin hafa skilað eins góðum árangri og raun ber vitni.

Í lokin munu þau svo ræða yfirfærslu þessar þekkingar yfir á aðrar heilbrigðisstéttir og hvernig hún gæti nýst þeim til að jafna kynjahlutföllin í námi sínu.

Viðburðurinn fer fram á YouTube hér

Öll velkomin!