Málþing: Hvað er inngildandi háskólaumhverfi?

12. febrúar 2026 kl. 10:00-11:30
Jafnréttisdagar 2026

Hvernig tryggjum við að háskólasamfélagið sé opið og aðgengilegt fyrir alla?

Á málþinginu verður fjallað um inngildingu í háskólum út frá ólíkum sjónarhornum: lýðræðislegu hlutverki háskóla, gildi akademísks samfélags, nýjar námsleiðir fyrir fólk með fjölþættar stuðningsþarfir og reynslu hinsegin stúdenta. Einnig verður rætt um áskoranir og tækifæri sem tengjast nemendum af erlendum uppruna og inngildingarverkefni opinberra háskóla.

Málþingið fer fram í stofu M101 og verður einnig streymt frá því á Zoom.

Þátttakendur: 

  • Sigurður Kristinsson, prófessor
  • Sigríður Guðmundsdóttir, verkefnastjóri náms fyrir fólk með fjölþættar stuðningsþarfi
  • Karen Alda Mikaelsdóttir, stúdent
  • Katrín Elva Ásgeirsdóttir, stúdent
  • Ley Fraser, fulltrúi, ERGI – félag hinsegin stúdenta á Norðurlandi
  • Lara Wilhelmine Hoffmann, nýdoktor & sérfræðingur
  • Katla Ósk Káradóttir, fulltrúi stúdenta í Jafnréttisráði HA, fundarstjóri

Markmiðið er að skapa vettvang fyrir opna umræðu um hvernig háskólar geta orðið fjölbreyttari, réttlátari og meira inngildandi.

Hlekkur á streymi

Öll velkomin!