Máttur félagsfræðinnar: Innsýn í ójafnan heim

11. febrúar 2026 kl. 11:00-12:00
Jafnréttisdagar 2026

Í erindinu mun Guðmundur Oddsson fjalla um kennslubókina The Power of Sociology: Grasping Our Unequal World eftir hann, Jenny M. Stuber og James M. Thomas sem kom út í janúar síðastliðnum á vegum SAGE háskólaútgáfunnar.

Um er að ræða inngangsbók í félagsfræði fyrir háskólanema sem leggur sérstaka áherslu á félagslegan ójöfnuð, alþjóðlegan samanburð og samfélagsvirkni. Höfuðmarkmið bókarinnar er að kynna lesendur fyrir félagsfræði með því að undirstrika megin viðfangsefni fræðigreinarinnar: Félagslegan ójöfnuð. Það sem einkennir helst bókina er áherslan á vald, sem mikilvægasta hugtak félagsfræðinnar.

Í erindinu verður stiklað á stóru um efni bókarinnar og staldrað við ýmsar birtingarmyndir ójafnaðar og valdaójafnvægis.

Viðburðurinn fer fram í stofu M101 og verður einnig streymt frá honum á Zoom.

Áhugasöm geta nálgast bókina hér

Hlekkur á streymi

Öll velkomin!