Laust er til umsóknar fullt starf aðjúnkts í hjúkrunarfræði.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felur í sér kennslu, rannsóknir og stjórnun. Næsti yfirmaður er forseti Hjúkrunarfræðideildar. Starfsvettvangur er Háskólinn á Akureyri. Staðan er veitt frá og með 1. júlí 2026. Ráðningartími er tímabundinn til tveggja ára.
Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á sveigjanlegt nám í hjúkrunarfræði. Námið er fjögurra ára nám til BS prófs. Niðurstöður kannana meðal nemenda sýna ánægju með gæði og innihald námsins. Nám í hjúkrunarfræði er fyrir öll kyn. Samkeppnispróf eru haldin við lok fyrsta misseris og ákvarða hverjir fá að halda áfram námi á vormisseri fyrsta árs. Fjöldi nemenda eftir haustmisseri fyrsta árs er u.þ.b. 75 á hverju ári. Fastráðið starfsfólk deildarinnar eru metnaðarfullur hópur, samsettur af akademísku starfsfólki, verkefnastjórum og aðjúnktum. Einnig koma fjölmargir stundakennarar að kennslu í deildinni, bæði í fræðilegu og klínísku námi.
Hæfniskröfur
- MS próf í hjúkrunarfræði eða heilbrigðisvísindum frá viðurkenndum háskóla.
- Doktorsnám á lokastigum er kostur.
- Kennslumenntun og reynsla af háskólakennslu er kostur.
- Reynsla af þátttöku í vísindarannsóknarstarfi er kostur.
- Að minnsta kosti 5 ára klínísk reynsla sem hjúkrunarfræðingur innan íslenska heilbrigðiskerfisins er æskileg.
- Þekking og reynsla af störfum innan erlendra heilbrigðiskerfa er kostur.
- Góð samstarfshæfni, lipurð í mannlegum samskiptum ásamt góðri færni í að miðla þekkingu.
- Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli.
Umsókn skal fylgja:
- Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil.
- Staðfest afrit af prófskírteinum á íslensku eða ensku.
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni msækjanda í starfið.
- Tilnefna skal a.m.k. tvo umsagnaraðila og er æskilegt að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda.
Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri.
Umsóknarfrestur er til og með 13.04.2026
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur.
Starfshlutfall er 100%
Nánari upplýsingar veitir
Hafdís Skúladóttir, forseti Hjúkrunarfræðideildar - hafdis@unak.is - 4608456
Sækja um starf