Mætingareglur Hjúkrunarfræðideildar

Grunnnám

Háskólinn á Akureyri er námssamfélag sem stúdentar eru hvattir til að taka virkan þátt í með tímasókn, fjarfundum og umræðum eftir því sem við á.

Staðbundnar námslotur á Akureyri eru á hverju misseri (einu sinni til tvisvar sinnum) og er skyldumæting í þær. Nýnemadagar teljast til námslota. 

Klínískt nám fer fram á heilbrigðisstofnunum víðs vegar um landið og er mætingaskylda. 

Ekki er gert ráð fyrir að nemendur mæti með börn í kennslu, próf eða klínískt/vettvangsnám. Telji nemandi sig ekki geta mætt án þess að taka barn með sér skal hafa samband við umsjónarkennara með góðum fyrirvara til að kanna hvort úrræði séu í boði.

Dagsetningar námslota og klínísks náms eru birtar fyrir upphaf skólaárs og mikilvægt er að kynna sér þær tímanlega. Hér getur þú séð hvenær námslotur eru.

Framhaldsnám

Gert er ráð fyrir virkri þátttöku stúdenta í öllu námi. Mæting í kennslulotur er mikilvæg forsenda árangurs og uppfyllingar námskrafna.

  • Stúdentar eru hvattir til að mæta í allar lotur námskeiða
  • Til að uppfylla lágmarkskröfur þarf stúdent að mæta í að minnsta kosti tvær af þremur lotum í hverju námskeiði sem hann er skráður í

Umsjónarkennari getur gert kröfu um mætingu í tilteknar lotur eða allar lotur námskeiðs. Slíkar kröfur geta verið mismunandi eftir námskeiðum og eru tilgreindar í kennsluáætlun.

Mæting getur farið fram á staðnum eða, með samþykki umsjónarkennara, í gegnum fjarbúnað (t.d. Fjærveru eða Zoom). Stúdentar þurfa að fá þjálfun hjá Kennslumiðstöð HA til að geta nýtt sér Fjærveru sem mætingu í námskeið. 

Forföll og veikindi

Ef stúdent getur ekki mætt vegna veikinda eða annarra gildra ástæðna skal hann hafa samband við umsjónarkennara eins fljótt og auðið er. Í sumum tilvikum kann að vera krafist staðfestingar. Umsjónarkennari ákveður hvort og hvaða viðbótarverkefni koma í stað mætingar.

Ábyrgð stúdenta

Stúdentar bera ábyrgð á að kynna sér mætingarkröfur og skipulag hvers námskeiðs í kennsluáætlun.