Stúdentar Háskólans á Akureyri geta sótt um Erasmus+ styrk til starfsþjálfunar eða rannsóknarvinnu hjá háskólum, fyrirtækjum eða stofnunum í Evrópu.
Starfsþjálfun veitir stúdetum tækifæri til að öðlast alþjóðlega starfsreynslu, styrkja faglega hæfni og byggja upp tengslanet sem nýtist síðar á vinnumarkaði.
Lengd dvalar
Erasmus+ starfsþjálfun býður upp á mismunandi lengd dvalar:
Lengri dvöl
Styttri dvöl
- 5–30 dagar
- Oft hluti af svokölluðu blended mobility (sambland af fjarnámi og staðlotu)
Doktorsnemar
- 5–30 dagar eða 2–12 mánuðir
Starfsþjálfun eftir útskrift
Stúdentar geta farið í Erasmus+ starfsþjálfun að loknu námi.
Skilyrði:
- Umsókn þarf að berast fyrir útskrift
- Dvölin þarf að ljúka innan 12 mánaða frá útskrift
- Dvölin getur verið allt að 6 mánuðir
Hvert er hægt að fara?
Hægt er að fara í starfsþjálfun til allra þátttökulanda Erasmus+.
Starfsþjálfun þarf að tengjast námi stúdentsins og deild háskólans þarf að staðfesta tengsl við námið.
Starfsþjálfun getur farið fram hjá:
- háskólum og rannsóknastofnunum
- einkafyrirtækjum
- opinberum stofnunum
- félagasamtökum
- menningar- og menntastofnunum
Hvernig finn ég starfsþjálfun?
Stúdentar finna sjálfir starfsþjálfunarstað.
Hægt er að:
- hafa samband beint við fyrirtæki eða stofnanir
- sækja um í starfsþjálfunargagnagrunnum
- nota ErasmusIntern.org
- fylgjast með tækifærum sem Miðstöð alþjóðasamskipta vekur athygli á
Hvernig sæki ég um?
Þegar starfsþjálfunarstaður hefur verið staðfestur:
- Sækja um Erasmus+ styrk í Uglu
- Fylla út Learning Agreement for Traineeship
- Samningurinn þarf að vera undirritaður af: stúdent, móttökustofnun og viðkomandi deild við HA
Inngildingarstyrkir
Stúdentar geta einnig sótt um inngildingarstyrk ef þeir uppfylla ákveðin skilyrði.
Inngildingarstyrkur á við um:
- stúdenta búsetta á landsbyggðinni
- stúdenta með efnahagslegar hindranir
- stúdenta sem eru innflytjendur eða börn innflytjenda
- stúdenta með stöðu flóttafólks
- stúdenta sem glíma eða hafa glímt við alvarleg veikindi, langvarandi veikindi eða andlegar áskoranir
- stúdenta með líkamlega fötlun, þroskafrávik, sjón-/heyrnarskerðingu eða námshamlanir
- stúdenta með börn undir 18 ára