Blended Intensive Programme (BIP)

Hvað er BIP?

Blended Intensive Programme (BIP) er Erasmus+ örnámskeið sem sameinar:

  • fjarnám
  • stutta staðlotu erlendis (oftast um 1 vika)

BIP námskeið er einstakt námstækifæri fyrir stúdenta sem geta ekki farið í langtímaskiptinám.

Í námskeiðunum eru stúdentar frá minnst þremur háskólum og þremur Erasmus+ löndum. Stúdentar geta fengið Erasmus+ styrk til að standa undir ferðakostnaði og dvöl.

Hversu margar einingar gefur BIP?

Stúdentar sem ljúka BIP námskeiði fá:

  • að lágmarki 3 ECTS einingar
  • sum námskeið eru 5–9 ECTS einingar

Skilyrði fyrir þátttöku

Til að taka þátt þarftu að:

  • vera skráður stúdent við Háskólann á Akureyri
  • hafa lokið að minnsta kosti 60 ECTS einingum (í sumum tilvikum getur verið undantekning)
  • hafa nægilega ensku kunnáttu (B1 eða B2)
  • taka þátt í bæði fjarnámi og staðlotu

Hvernig sæki ég um BIP?

Fylgdu eftirfarandi skrefum til að sækja um þátttöku í BIP námskeiði.

1. Finndu námskeið sem hentar þér

BIP námskeið má finna hér:

Athugaðu vel: námskeiðslýsingu, dagsetningar, ECTS einingar og inntökuskilyrði

2. Hafðu samband við deildina þína

Hafðu samband við Miðstöð alþjóðasamskipta og verkefnastjóra námsbrautar til að:

  • Staðfesta að námskeiðið passi í námsáætlun
  • Tryggja að einingar verði viðurkenndar

3. Sæktu um

Umsóknarferlið felur yfirleitt í sér:

  • Umsókn til samstarfsskóla með aðstoð Miðstöðvar alþjóðasamskipta
  • Rafræna umsókn í Uglu (hún er einnig styrktarumsókn)
  • Learning Agreement for BIP

Inngildingarstyrkir

Stúdentar geta einnig sótt um inngildingarstyrk ef þeir uppfylla ákveðin skilyrði.

Inngildingarstyrkur á við um:

  • stúdenta búsetta á landsbyggðinni
  • stúdenta með efnahagslegar hindranir
  • stúdenta sem eru innflytjendur eða börn innflytjenda
  • stúdenta með stöðu flóttafólks
  • stúdenta sem glíma eða hafa glímt við alvarleg veikindi, langvarandi veikindi eða andlegar áskoranir
  • stúdenta með líkamlega fötlun, þroskafrávik, sjón-/heyrnarskerðingu eða námshamlanir
  • stúdenta með börn undir 18 ára