Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa 100% stöðu aðjúnkts í leikskólafræði við Kennaradeild Hug- og félagsvísindasviðs. Helstu verkefni eru kennsla á bakkalár- og meistarastigi og rannsóknir á sviði leikskólafræði. Næsti yfirmaður er forseti Kennaradeildar.
Starfsstöð er á Akureyri.
Miðað er við að viðkomandi geti hafið störf 1. ágúst 2026. Ráðningartími er tímabundinn til tveggja ára.
Við Kennaradeild HA er boðið upp á nám í kennarafræði (B.Ed.), meistaranám til kennsluréttinda (M.Ed. og MT), rannsóknartengt meistaranám (MA) í menntavísindum og doktorsnám (Ph.D). Nemendur við deildina eru um 620 og kennarar 23.
Helstu verkefni og ábyrgð
Leitað er eftir háskólakennara sem getur kennt námskeið í leikskólafræði og stundað rannsóknir á því fræðasviði. Mikilvægt er að umsækjendur taki virkan þátt í daglegu akademísku samfélagi háskólans og nærsamfélagsins á Norðurlandi. Við mat á umsóknum er tekið mið af hversu vel viðkomandi uppfyllir þarfir Kennaradeildar.
Hæfniskröfur
- Umsækjandi skal að lágmarki hafa meistarapróf í menntunarfræði eða menntavísindum (M.Ed./MA) á sviði leikskólafræði.
- Umsækjandi skal hafa leyfisbréf til kennslu og reynslu af kennslu í leikskóla.
- Kennslureynsla á háskólastigi og birtingar á ritrýndum vettvangi eru æskilegar.
- Æskilegt er að umsækjandi sé í doktorsnámi í leikskólafræði eða ætli sér í doktorsnám með starfi.
- Krafist er góðrar hæfni í mannlegum samskiptum og skipulagshæfni.
- Gott vald á íslensku og ensku er nauðsynlegt.
Umsókn skal fylgja
- Greinargóð skýrsla um náms- og starfsferil, fræðistörf og kennslureynslu.
- Staðfest afrit af öllum viðeigandi prófskírteinum.
- Greinargerð um fyrirhugaðar rannsóknaráherslur og kennslusvið ef til ráðningar kæmi.
- Umsagnir um kennslu- og stjórnunarstörf umsækjanda eftir því sem við á.
- Tilnefna skal þrjá meðmælendur, æskilegt er að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi starfi eða fyrra starfi umsækjanda.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.04.2026
Nánari upplýsingar veitir
Guðmundur Engilbertsson, forseti Kennaradeildar, ge@unak.is, 460-8570
Sækja um starf