Ísinn að hörfa og verndaraðgerða þörf

Vísindafólk háskólans hvetur til aðgerða svo vernda megi miðhluta Norður-Íshafsins
Ísinn að hörfa og verndaraðgerða þörf

 

Vísindafólk hvetur stjórnvöld á norðurslóðum til að gera alþjóðlegt samkomulag um miðhluta Norður-Íshafsins. Í dag er svæðið þakið ís en með hlýnun jarðar hörfar ísinn og í dag liggja fyrir tillögur um nýjar skipaleiðir og námuvinnslu neðansjávar sem geta ógnað viðkvæmum vistkerfum á svæðinu.

Árið 2018 bönnuðu tíu ríki nytjar þar í atvinnuskyni til að verja svæðið og lífríkið. Ríkin sem um ræðir voru Kanada, ESB, Danmörk, Grænland, Ísland, Japan, Noregur, Kína, Suður-Kórea, Rússland og Bandaríkin.

Vísindafólk kallar núna eftir áframhaldandi tímabundinni stöðvun á allri starfsemi á svæðinu þar til búið er að skapa traustan ramma um sameiginlegar rannsóknir, eftirlit, gagnaflutning og stjórnun. Fyrst var varað við þessu af meira en 2.000 vísindafólki árið 2012, og síðari rannsóknir hafa undirstrikað mikilvægi svæðisins á alþjóðavísu vegna hafstrauma, loftslagskerfa og líffræðilegrar fjölbreytni.

Hátt í 700 rannsakendur, þarf af fjórir frá Háskólanum á Akureyri hafa nú undirritað bréf þar sem hvatt til aðgerða svo vernda megi svæðið. Fara þarf fram með notkun á svæðinu með varúð og byggja á þekkingu frumbyggja og vísindafólks og stuðla að samvinnu sem skapar nauðsynlegan ramma um notkun á svæðinu til framtíðar.

Hér er hægt að nálgast frétt um málið.