Sambúð eftir starfslok

30. mars 2026 kl. 14:00-15:00
Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbær.

Olga Ásrún Stefánsdóttir, aðjúnkt við Iðjuþjálfunarfræðideild Háskólans á Akureyri segir frá rannsókn sinni sem fjallar um þegar eldri makar í hjónabandi þurfa að flytja að heima á hjúkrunarheimili vegna alvarlegrar vitrænnar skerðingar. Rannsóknin er unnin út frá sjónarhóli þess maka sem áfram býr heima og sýnir fram á hvernig daglegt líf þeirra raskast verulega, hvað varðar sjálfsmynd, dagleg verkefni. athafnir sem og almenna vellíðan.

Meðal annars var kannað hvaða áhrif vitræn skerðing maka hefur á hjónabandið, fjölskyldulíf, umönnunarverkefni og ábyrgð sem og samskipti við formlega mönnunarþjónustu.

Boðið verður upp á fleiri erindi á vormisseri á Opnu húsi:

  • 20. apríl - Að halda jafnvægi í lífinu - Hreyfing, öryggi og vellíðan fyrir 60+
  • 18. maí - Næring fyrir eldri borgara og Teymisvinna HSN fyrir sína skjólstæðinga kynnt

Opin hús eru alltaf á mánudögum klukkan 14:00 í stofu N102, Sólborg, Norðurslóð 2

Opið hús er samstarfsverkefni Góðvina Háskólans á Akureyri, Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eystra, Sjúkrahússins á Akureyri, Félags eldri borgara á Akureyri og Virk efri ár - Akureyrarbær. Verkefninu er ætlað að auka aðgengi að fræðslu og bjóða fólk velkomið í háskólann okkar allra!

Öll velkomin á meðan húsrúm leyfir - Ókeypis aðgangur!