Laust starf: Verkefnastjóri við Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið

Leitum að verkefnastjóra sem vill taka virkan þátt í þróun, undirbúningi og framkvæmd náms á Heilbrigðis-, viðskipta- og raunvísindasvið (HVR). Starfið sameinar verkefnastjórnun, upplýsingagjöf, ráðgjöf og þjónustu og krefst nákvæmni, samskiptahæfni og fagmennsku. Viðkomandi mun vinna náið með skrifstofustjóra, deildarforsetum og öðru starfsfólki í öflugu, þverfaglegu umhverfi.

Um fullt starf er að ræða. Næsti yfirmaður er skrifstofustjóri HVR og er starfsstöðin á Akureyri.

Starfið felst í miklum samskiptum, samvinnu og þjónustu við stjórnendur, starfsfólk og nemendur sviðsins. Á sviðsskrifstofunni starfa fimm verkefnastjórar en um níutíu starfsmenn vinna við fræðasviðið í akademískum störfum og stoðþjónustu. HVR býður upp á grunn- og framhaldsnám í fjórum deildum, Auðlindadeild, Hjúkrunarfræðideild, Iðjuþjálfunarfræðideild og Viðskiptadeild og eru nemendur um 1400 þetta skólaárið.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sinnir verkefnastjórnun, skipulagi og upplýsingagjöf fyrir sviðið til starfsfólks, nemenda og miðlægrar stjórnsýslu háskólans
  • Samræmir og bætir verkefni og verkferla þvert á deildir, fræðasvið og stoðeiningar
  • Heldur utan um skráningu og úrvinnslu upplýsinga um nám, skipulag náms, kennslu og starfsmannahald
  • Vinnur að framkvæmd og tilhögun náms samkvæmt náms-og kennsluskrá deilda og brauta í samstarfi við stjórnendur og annað starfsfólk sviðsskrifstofu
  • Vinnur að úrlausn álitamála er varða nám og kennslu í samstarfi við stjórnendur og samstarfsfólk á sviðsskrifstofu
  • Undirbýr fundi og annast fundarritun í samstarfi við stjórnendur fræðasviðsins

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf sem nýtist í starfi
  • Reynsla af skrifstofustörfum og þekking af verkefnastjórnun
  • Reynsla af þróun og vinnu með gæða- og verkferla er kostur
  • Þekking á háskólaumhverfinu og opinberri stjórnsýslu er kostur
  • Góð almenn tölvukunnátta og hæfileiki til að nýta sér þekkingu
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti
  • Góð samskiptafærni, sjálfstæð og vönduð vinnubrögð, rík þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum

Umsókn skal fylgja:

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
  • Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda
  • Nöfn að minnsta kosti tveggja meðmælenda

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

  • Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
  • Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.
  • Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2026

Nánari upplýsingar veitir

Anna Bryndís Sigurðardóttir, skrifstofustjóri, disa@unak.is.

Sækja um starf