Háskólinn á Akureyri auglýsir laust til umsóknar 100% starf verkefnastjóra reikningshalds og fjármálagreininga. Starfið heyrir undir forstöðumann fjármála og greiningar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
Verkefnastjóri reikningshalds og fjármálagreininga hefur yfirumsjón með reikningshaldi háskólans. Hann er tengiliður háskólans við ráðuneyti og Ríkisendurskoðun.
Verkefnastjórinn er tengiliður við stjórnendur fræðasviða. Hann ber ábyrgð á og annast mánaðarlega launagreiningu fræðasviða og greinir frávik í rekstri í samvinnu við stjórnendur.
Verkefnastjórinn tekur þátt í áætlanagerð fyrir háskólann með áherslu á fræðasvið sem og gerð fjárfestingaáætlunar. Hann veitir stjórnendum háskólans upplýsingar og leiðbeiningar í tengslum við áætlanagerð og rekstur og leitar leiða til að bæta upplýsingagjöf.
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi er nauðsynleg og er háskólapróf á meistarastigi kostur
- Góð þekking á reikningshaldi er nauðsynleg
- Þekking og reynsla af bókhalds- og launakerfum er nauðsynleg. Reynsla af bókhalds- og launakerfi ríkisins er kostur
- Reynsla í greiningu gagna og fjármálalæsi er nauðsynleg
- Góð tölvukunnátta er nauðsynleg, þ.m.t. mikil færni í Excel
- Þekking á opinberri stjórnsýslu og umhverfi háskóla er kostur
- Frumkvæði og sveigjanleiki ásamt getu og áræðni til að taka við nýjum verkefnum án fyrirvara eru mikilvægir hæfnisþættir
- Gott vald á íslensku, jafnt töluðu sem rituðu máli og færni í ensku er nauðsynleg
- Skipuleg og vönduð vinnubrögð, ábyrgðarkennd ásamt þjónustulund, jákvæðni og lipurð í mannlegum samskiptum eru mjög mikilvæg
Umsókn skal fylgja
- Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
- Staðfest afrit af viðeigandi prófskírteinum
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið
- Tilnefna skal a.m.k. tvo meðmælendur, æskilegt er að annar þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.
Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum.
Háskólinn á Akureyri stuðlar að jafnrétti kynjanna og hvetur öll kyn til að sækja um laus störf.
Við ráðningu í störf við Háskólann á Akureyri er tekið mið af jafnréttisáætlun háskólans og tekið er tillit til þarfar einingarinnar við ráðningu.
Starfshlutfall er 100%.
Umsóknarfrestur er til og með 02.02.2026
Nánari upplýsingar veitir
Helga María Pétursdóttir, forstöðumaður, helgamaria@unak.is.
Sækja um starf