Alma Möller heilbrigðisráðherra og Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra komu í heimsókn
Í gær fengum við góða heimsókn frá Ölmu Möller heilbrigðisráðherra og Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Með í för voru Eydís Ásbjörnsdóttir, þingmaður kjördæmisins, og aðstoðarmenn ráðherra.
Tilgangur heimsóknarinnar var að kynna verkefni sem háskólinn stendur að ásamt því að skoða hermisetur Hjúkrunarfræðideildar og í lokin voru umræður.
Áslaug Ásgeirsdóttir rektor tók á móti gestunum ásamt forsetum fræðasviðanna, Tom Barry og Brynjari Karlssyni. Með þeim var sérhæft starfsfólk frá Iðjuþjálfunarfræðideild, Hjúkrunarfræðideild og Sálfræðideild sem kynnti verkefnin og tók þátt í umræðum.

Meðal annars var rætt um öldrunarþjónustu, lífsstílssjúkdóma og endurhæfingu ásamt því að fjalla um möguleika á námsbraut í áfengis- og vímuefnaráðgjöf. Þá var fjallað um Miðstöðvar rannsókna á sjálfsvígum og Miðstöð innflytjendamála sem verið er að stofna og munu starfa við háskólann.