Lögfræðitorg - EES-reglur og blóðtaka úr hryssum til framleiðslu á hormónum

19. mars 2026 kl. 11:45-13:15
Meginefni torgsins verður að þessu sinni rætt um ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins í máli sem nú er til meðferðar hjá dómstólnum í máli Ísteka gegn Matvælastofnun

Á undanförnum árum hefur blóðtaka úr fylfullum hryssum á Íslandi vakið athygli hérlendis og erlendis. Starfsemin tengist framleiðslu hormónsins PMSG/eCG og hafa miklar umræður skapast um dýravelferð, eftirlit og lagalega umgjörð starfseminnar. Meginefni torgsins verður að þessu sinni rætt um ráðgefandi álit EFTA-dómstólsins í máli sem nú er til meðferðar hjá dómstólnum í máli Ísteka gegn Matvælastofnun, en málflutningur fór fram hinn 11. mars sl.

Dagskrá

  • Er dýravelferð hluti af EES-samningnum? - Davíð Þór Björgvinsson, prófessor við lagadeild HA
  • Ráðgefandi álit í máli Ísteka gegn Matvælastofnun (erindi á zoom) - Sigurbjörn Edvardsson og Margrét Björk Sigurðardóttir, lögfræðingar hjá ESA, Eftirlitsstofnun EFTA
  • Ávinnings- og skaðamat í skilningi reglugerðar nr. 460/2017 - Björn M Sigurjónsson, stjórnarmaður í Samtökum um dýravelferð á Íslandi.
  • Almennar umræður

Stjórnandi Lögfræðitorgs: Ragnheiður Elfa Þorsteinsdóttir

ÖLL ERU VELKOMIN OG TORGIÐ ER OPIÐ ÖLLUM ENDURGJALDSLAUST!