Út er komin fyrsta bókin í bókaröðinni Heimspekibrot (e. Philosophical Fragments)
Greint var frá því í apríl á vef háskólans að væntanleg væri fimm bóka sería eftir Giorgio Baruchello, prófessor við Félagsvísindadeild háskólans. Nú er hægt að nálgast fyrstu bókina á Amazon.
Bækurnar eru heimspekileg bókmenntaverk og eru gefnar út af Northwest Passage Books í Kanada. Giorgio bjó í Guelph í Ontario, Kanada þegar hann var við doktorsnám og það er gaman að segja frá því að hann lætur öll höfundarlaun sín renna til góðgerðasamtaka í þeirri borg.
Fyrsta bókin er nú komin út og verða þær gefnar út til ársins 2027. Í bókaflokknum má finna texta sem spannar gamanleikrit, háðsádeilur, smásögur og nóvellur. Stíllinn er oftast skoplegur og léttur en í textunum birtist einnig sýn á alvarlegri og fullorðins málefni, sérstaklega hvernig húmor tengist grimmd í samtímanum og mannlífi almennt. Stíll Giorgio hefur verið borinn saman við Plautus, Leacock, Beckett, Ionesco, the Goons, Queneau, McLean og Umberto Eco. Meginmarkmiðið er að láta lesendurna hugsa en þó án þess að segja þeim hvað þau eigi að hugsa, þ.e. án þess að prédika eða draga úr fjölda hugsanlegra sjónarmiða.
Á bakvið nýju bókaröðina standa fjölmargar heimspekilegar rannsóknir Giorgios allt frá árinu 1998 um náttúru- og manngerða grimmd, þar á meðal fræði- og félagsvísindalega fjögurra binda bókaröðin „Húmor og grimmd“ (Berlín: De Gruyter, 2022–2024), birt ásamt Ársæli M. Arnarssyni, prófessor og líffræðilegum sálfræðingi við Háskóla Íslands.
Hver bók verður einstök að útliti, með frumlegum kápum, skreyttum listaverkum eftir þekkta alþjóðlega ljósmyndara – þar á meðal Armando Gallo, Alberto Terrile, Agata Wilczyńska og Veroniku Korchak.
Bókin hlýtur góða dóma
Richard Proust, Emiritus í heimspeki hjá St. Andrews háskólanum í Norður Karolínu hefur birt dóm sinn um bókina.
Í ritdóminum er bók Giorgios lofuð sem sjaldgæf og vel heppnuð samþætting heimspekilegrar nákvæmni og einlægs húmors. Þar er jafnframt gefið í skyn að verkið kunni að vera afrakstur heimspekilegs kómísks snillings sem sé að ná fullum þroska. Richard heldur því fram að bókin sýni hvernig hlátur geti opinberað sannleika sem er óaðgengilegur alvarlegri orðræðu og geri húmor þannig að nauðsynlegri túlkunaraðferð fremur en truflun á leitinni að sannleikanum.
Með hugmyndaríkum ritgerðum, leikandi orðræðu og fjölmörgum dæmum dregur Baruchello fram hið hlægilega í akademíska heiminum og opnar með því nýjar leiðir fyrir heimspekilega umfjöllun um húmor. Í heild sinni segir Richard verkið frumlegt, metnaðarfullt og á köflum afar fyndið framlag til heimspeki og rannsókna á húmor.
Þá hafa fleiri birt dóma um bókina og hér er gripið niður í einn, „Ég tilheyri kynslóðinni sem ólst upp með algrímum...Þessa bók geta flestir notið! Sögurnar sjálfar eru þess virði að lesa, hvort sem lesið er dýpra í þær eða ekki. En ef þú velur að kafa dýpra opnast önnur vídd til ígrundunar, tilfinninga og hugsunar. Að lesa hana er eins og að hlusta á lag eftir söngvara með stóran lagalista og öflugan aðdáendahóp: það má njóta þess án þess að þekkja mikinn bakgrunn.“
Annar lesandi lofsamar bókina og svo sé vitnað í fyrstu setningu þess ritdóms, „Þessi bók er ævintýraland hins dularfulla og ríkulegra unaðsstunda.“ Þá er einn lesandi sem gefur innsýn inn í samband húmors og grimmdar sem er þema bókarinnar, „Baruchello fjallar ekki um þessi hugtök á fræðilegan eða óhlutbundinn hátt; hann ljær þeim líf. Hann holdgerir þau í persónum sem eru oft ýktar eða skopmyndaðar — sumar fráhrindandi, aðrar sársaukafullt kunnuglegar. Hláturinn sem hljómar um margar blaðsíður er aldrei huggandi; það er hlátur sem afhjúpar, sviptir grímum og raskar ró.“
Alla ritdóma má finna á Goodreads.com og Amazon.com.