Stúdentar í fjölmiðlafræði við HA og stríðið í Úkraínu

Verðandi fjölmiðlafræðingar sækja Ríga í Lettlandi heim
Stúdentar í fjölmiðlafræði við HA og stríðið í Úkraínu

Í Ríga í Lettlandi starfar fjöldi fjölmiðlafólks sem er í útlegð frá Rússlandi af mörgum ástæðum. Sum þess hafa verið ákærð og eiga yfir höfði sér fangelsisvist, eða flúðu og vinna í útlegð. Sum þeirra eiga möguleika á að snúa aftur, en það gildir ekki í öllum tilfellum. Hópur nemenda í fjölmiðlafræði við HA tekur þátt í Erasmus verkefni og er í heimsókn í borginni og fékk að heyra áhrifamiklar sögur fólksins í Fjölmiðlasetrinu Riga Media Hub fyrir landflóttablaðamenn.


Blaðamaður sem sat í fangelsi í 19 ár vegna skrifa sinna

Námsferð fyrir stúdenta í fjölmiðlafræði við HA stendur yfir en í ferðinni er lögð áhersla á líf fjölmiðlafólks sem býr og starfar í skugga stríðs hinum megin við landamærin. Jafnframt er tilgangur ferðarinnar að byggja upp tengsl við fjölmiðlafræðistúdenta í Stradina háskólanum í borginni. Íslenski hópurinn er með kynningu á Íslandi og í íslenskum fjölmiðlum sem og kynningu á námi í fjölmiðlafræði. Stúdentar Háskólans á Akureyri og lettnesku stúdentarnir í fjölmiðlafræði hafa mælt sér mót og ætlunin er að heimafólkið segi sínar sögur og lýsi því hvernig það upplifir návígið við stríðið milli Rússlands og Úkraínu. Hvaða áhrif hefur þetta á framtíðarsýn og lífsgæði ungs fólks í Lettlandi? Ætlunin er að úr þessum samtölum verði greinar sem vonandi eiga eftir að birtast í íslenskum miðlum.


Stúdentar HA að kynna íslenska fjölmiðla fyrir stúdentum í Stradína háskólanum í Ríga

Stúdentar HA munu einnig fræðast um samstarf Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna og heimsækja upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar. Auk þess munu þeir kynna Ísland og íslenska fjölmiðla fyrir nemendum í Stradína háskólanum í Ríga.

Umsjónarkennarar með þessu námskeiði eru Sigrún Stefánsdóttir og Skúli Bragi Geirdal.